„Eflum opinbera menntakerfið og tölum það ekki niður“ Samúel Karl Ólason skrifar 1. júlí 2014 07:00 Aðalheiður Steingrímsdóttir, varaformaður kennarasambands Íslands. Vísir/Stefán „
Niðurstöður úr PISA og öðrum alþjóðlegum rannsóknum geta átt þátt í því að beina athygli okkar að sterkum hliðum íslensks skólakerfis og að ýmsum vanda. Þær geta verið tilefni til að spyrja vel ígrundaðra spurninga um hvernig við getum gert góðan grunnskóla enn betri. En PISA hefur margar takmarkanir.“ Þetta skrifar Aðalheiður Steingrímsdóttir, varaformaður Kennarasambands Íslands í grein sem birtist á Vísi í gærkvöldi undir heitinu PISA: Gagnlegar upplýsingar en ekki endanlegur dómur um gæði. Í greininni segir hún að í niðurstöðum úr einstökum skólum komi fram ólík þátttaka og mikil óvissa felist í því að nota niðurstöðurnar um hvern og einn. „Félagslegt umhverfi skóla er mismunandi og bakgrunnur nemenda. Jöfnuður milli grunnskóla hér á landi er samt sem betur fer með allra mesta móti af öllum 65 þátttökulöndunum en á hinn bóginn er getustig nemenda í einstökum skólum hér á landi eitt það fjölbreytilegasta samanborið við hin löndin. Allir vita að skólar hafa aldrei haft raunverulega stöðu til að starfa samkvæmt stefnu um skóla án aðgreiningar og hefur niðurskurður undanfarinna ára á fjármunum til skólastarfs ekki gert hlutina auðveldari,“ segir Aðalheiður. Hún segir að Íslendingar þurfi að vera mjög vakandi fyrir því hvernig PISA niðurstöður séu notaðar. Ef eingöngu sé einblýnt á hvar lönd og skólar raðist niður á lista missi fólk sjónar af almennu þroska- og menntunarhlutverki skólans. „Í sumum löndum hefur slök útkoma í PISA verið misnotuð pólitískt til að færa rök fyrir aðgerðum í menntamálum sem rannsóknarniðurstöður fjalla ekkert um. PISA gefur gefið okkur gagnlegar upplýsingar en er alls ekki einhver endanlegur dómur um gæði skólastarfsins. Ef við horfum fram hjá almennu þroska- og menntunarhlutverki skólans þegar við leggjum mat á hlutina þá erum við á villigötum,“ skrifar Aðalheiður. Hún segir rannsóknir á menntakerfum landa sýna að nokkur einkenni séu sameiginleg þeim löndum sem OECD telur hafa tekist vel upp í menntamálum sínum. Þau séu opinber skóli sem sé fyrir alla, skólastjórnendur og kennarar njóti trausts og búi við sjálfstæði í starfi, góða kennaralaun, fagmenntun kennara sé á mastersstigi háskóla og starfsþróun þeirra sé samofin kennarastarfinu, góð samskipti séu á milli nemenda og kennara og hátt hlutfall barna sé í leikskólum. „Margt getum við lært af reynslu þessara landa, eflum opinbera menntakerfið og tölum það ekki niður.“
Mest lesið Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Innlent Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Innlent Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Innlent Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Innlent Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Erlent Kristinn ekki bænheyrður Innlent Segist saklaus Innlent Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Innlent Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Innlent Á annan tug ferðalanga fastir á Holtavörðuheiði Innlent Fleiri fréttir Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Áætla að 188 frelsissviptir útlendingar hefðu verið vistaðir í nýja úrræðinu Sigríður Ingibjörg ráðinn nýr framkvæmdastjóri BSRB Á annan tug ferðalanga fastir á Holtavörðuheiði Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Umdeild málsókn, sviptingar í fjölmiðlum og verðhækkanir Þó nokkur snjóflóð fallið og loka Flateyrarvegi í kvöld Fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir hópárás Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Sýkna Landsbankann af kröfum Quang Le Kristinn ekki bænheyrður Landsréttur tók ekki heldur mark á lygilegri frásögn Fimm ár fyrir stangir fullar af amfetamíni Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Umsókn Miðflokksins í klúbb evrópska íhaldsmanna ekki svarað Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Samtal hafið um Ísafjarðarflug Ferðamenn valdi fleiri slysum en ölvaðir eða ungir ökumenn Miðflokkur kynnir sex efstu í Garðabæ Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Norðanhríð fyrir vestan og Ísland í máli gegn Ísrael Þau eru á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Óvissustig í Súðavíkurhlíð Sjá meira