Sorp gefur til kynna komu betri tíma Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 25. júlí 2014 09:45 Þeir sem vinna við ruslið fá ágæta mynd af ástandi landans sem virðist nú aftur hafa meira á milli handanna en fyrstu árin eftir hrun. Fréttablaðið/ Stefán
samfélagsmál Ef litið er á það magn sem kemur til endurvinnslustöðva Sorpu má leiða að því líkum að neysla landans sé heldur að aukast eftir mögur ár. „Heildarmagn inn á Endurvinnslustöðvar Sorpu er ekki komið í sömu hæðir og fyrir hrun en við stefnum í þá átt,“ segir Guðmundur Tryggvi Ólafsson, rekstrarstjóri endurvinnslustöðva Sorpu. „Það sem af er árinu fjölgar heimsóknum um ríflega sjö prósent og magn úrgangs að sama skapi. Það er ekki hægt að horfa fram hjá þeim möguleika að þetta séu merki um aukinn kaupmátt og aukinn áhuga almennings á umhverfismálum.“ Hann bætir við að frá því að sveitarfélögin tóku blátunnuna í notkun hafi það skilað sér í frekari þátttöku almennings í pappírsflokkun og síðan leitt til aukinnar flokkunar annarra endurvinnsluefna. Hann segir enn fremur að meira af hlutum, fatnaði og raftækjum skili sér til Góða hirðisins og söfnunar Rauða krossins en á mögru árunum fyrst eftir hrun. Ingþór Guðmundsson, stöðvarstjóri endurvinnslunnar hjá Gámaþjónustunni, segir að þar hafi menn orðið varir við að neysla landsmanna sé að aukast. Aðspurður hvort hún sé að ná sömu hæðum og fyrir hrun svarar hann: „Nei, almáttugur. Það er ekki svo. Þá var svo svakaleg sóun sem ég vonast ekki til að sjá aftur. Nú er þetta bara að komast í eðlilegt horf.“ Hann segir enn fremur að fólk sé farið að endurvinna mun meira en áður og nánast öllu sem er endurvinnanlegt er komið í endurvinnslu. Þegar kaupgetan þvarr hjá landanum við hrunið sáust þess glöggt merki í Urðunarstöðinni á Álfsnesi. Þar varð 35 prósenta samdráttur á magninu sem þangað kom þar frá árinu 2008 til 2010. Varð þetta til þess að stytta varð vinnutíma starfsmanna á Álfsnesi um eina og hálfa klukkustund. Á þessu ári virðist ætla að verða samdráttur á magninu sem þangað berst en á því eru aðrar skýringar en minni neysla. „Það er annars vegar vegna aukinnar endurvinnslu á svæðinu, einkum þá á pappír og pappa, vegna blátunnuvæðingarinnar,“ segir Bjarni Gnýr Hjarðar, yfirverkfræðingur hjá Sorpu. „Og hins vegar vegna eigendasamkomulags sveitarfélaganna sem standa að Sorpu, þess efnis að hætta eigi móttöku á hluta af lífrænum úrgangi samkvæmt sérstakri áætlun fram að gangsetningu gas- og jarðgerðarstöðvar.“
Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira