Bókstöfunum C, Q, W, Z og X verði bætt inn í færeyskuna Kristján Már Unnarsson skrifar 19. febrúar 2014 19:30
Heitar umræður standa nú yfir í Færeyjum um frumvarp, sem liggur fyrir Lögþinginu, um að fimm nýjum bókstöfum verði bætt inn í færeyska stafrófið, þar meðal séinu (C), kúinu(Q) og tvöfalda vaffinu (W). Fylgismenn segjast þannig vilja alþjóðavæða færeyskuna. Íslendingum þykir flestum gaman að lesa færeysk orð og sjá skyldleikann en líka það sem skilur á milli í tungumálum þessara frændþjóða. Færeyskan hefur til dæmis hvorki Þ né X en á sameiginlega með íslenskunni bókstafi eins og Á, Ð, Ú, Ý og Æ en þeirra Ø skrifast með skástriki eins og í dönsku. Í Lögþingi Færeyja er nú til umræðu frumvarp sem einn reyndasti þingmaður þeirra, Henrik Old, flytur um róttæka breytingu á færeyska stafrófinu, sem þeir kalla stavrað; að bætt verði inn bókstöfunum C, Q, W, X og Z. Rökin eru meðal annars alþjóðavæðing; stafrófið eigi að endurspegla veruleikann en ekki að vera þjóðernismál heldur hentugt tæki í daglegum samskiptum fólks. Guðvarður Gunnlaugsson, íslenskufræðingur við Árnastofnun, var nýlega í Færeyjum og kynntist því hvað þetta er mikið hitamál þar. Hann telur skýringuna vera þá að margir Færeyingar heiti nöfnum með útlendum bókstöfum. „Þessir útlendu stafir eru mjög algengir í færeyskum nöfnum. Og það er ein ástæðan fyrir því að þetta verður svona hitamál. Mörgum finnst framhjá sér gengið ef ekki er hægt að raða þeirra eigin nöfnum inn í færeyskt stafróf,” segir Guðvarður. Íslenska stafrófið, sem sjá má á heimasíðu Árnastofnunar, er líka án útlendu bókstafanna, en er ekki lögbundið eins og það færeyska, heldur birt með auglýsingu ráðherra. Því til viðbótar eru til opinberir staðlar um hvar útlendir bókstafir eigi að raðast. Guðvarður telur ekki ástæðu til að breyta íslenska stafrófinu: „Ég held að þetta sé ágætt kerfi sem við höfum hérna. Við erum með ákveðið stafróf á auglýsingu, íslenska stafi. En síðan erum við með staðal um það hvar hinir eiga að koma inn, ef þörf krefur.”
Mest lesið Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Innlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Erlent Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Innlent Fleiri fréttir Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Sjá meira