Innlent

Gripaflutningar á fötluðum

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Bergur Þorri Benjamínsson, málefnafulltrúi Sjálfsbjargar, Landssamband fatlaðara og varamaður í stjórn gagnrýnir harðlega þá bíla, sem notaðir eru víða um land til að keyra fatlaða á milli staða  og talar um gripaflutninga á fötluðum í því sambandi. Þá furðar hann sig á því að ekki séu þriggja punkta belti eða hnakkapúðar í bílunum.

Bergur Þorri hefur verið í hjólastjól í 15 ár eða eftir að hann slasaðist eftir að hann féll niður af þaki íþróttahússins á Akureyri þar sem hann var að vinna. Bergur Þorri er frá Ytri Tjörnum í Eyjafjarðarsveit en býr í Hafnarfirði í dag.  Hann er málefnafulltrúi Sjálfsbjargar, Lanssambands fatlaðra og varamaður í stjórn. Hann er ekki sáttur við bílaflota ferðaþjónustu fatlaðra,sem sveitarfélög landsins sjá um, oftast eru þetta verktakar, sem hafa umsjón með bílunum.

“Sumir mættu nú alveg fara í smá klössun, það þarf einfalega að endurnýja bílana, þeir eru keyrðir fjögur hundruð til átta hundruð þúsund kílómetra, þeir eru einfaldlega búnir að vera og þurfa endurnýjunar við”, segir Bergur Þorri.

Hann líkir bílnum við gripaflutningabíla

“Já, maður upplifir bílana sem hálgerða gripaflutningabíla vegan þess að þegar ekki er hugsað um öryggi heldur bara að koma sem flestum inn í bílana og taka sem flesta í hverri ferð þá hugsar maður það verandi úr sveit.”

Bergur Þorri gagnrýnir líka öryggisbúnað bílanna.

“Þessi gagnrýni snýst um það, ekki bara hér í Reykjavík,  heldur út um allt land að ekki sé farið eftir 10 ára reglum og segja til um að það eigi t.d. að nota þriggja punkta belti og höfuðpúða þegar það er verið að koma fólki, sem situr í hjólastól í ferðaþjónustubílum. Ég skil ekki af hverju er ekki farið eftir þessum reglum fyrst þær eru þegar til staðar”, segir Bergur Þorri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×