Hefur sparað 560 túra í gegnum miðbæinn Svavar Hávarðsson skrifar 1. mars 2014 00:01 Umferð flutningabíla er mikil um miðbæinn en nú hefur verulega dregið úr eftir tilkomu frystigeymslu HB Granda. Fréttablaðið/Pjetur „
Þetta er frábært mál og hefur reynst gæfuspor að þessari starfsemi var komið á fót. Það skipti verulegu máli þegar það var kynnt fyrir okkur hvernig mögulegt væri að landa beint í skipin og minnka gámaflutninginn í gegnum þessi viðkvæmu svæði á daginn,“ segir Páll Hjaltason, formaður skipulagsráðs Reykjavíkur, um reynsluna af Ísbirninum, nýrri frystigeymslu HB Granda á Norðurgarði. Páll segir um forsögu málsins að raddir hafi verið uppi um að staðsetning hússins væri mjög áberandi, gengt tónlistarhúsinu Hörpu. Það ætti jafnvel heima annars staðar. „Þetta er auðvitað bara ísskápur sem kallar ekki beint á arkitektúr, en hins vegar hafa verið sett upp lisaverk við hafnarmynnið og í samhengi við Hörpuna þá sparast keyrsla þessara stóru bíla framhjá tónlistarhöllinni á stað sem fjölmargir sækja daglega, segir Páll. „Þetta var mjög borgarvæn aðgerð.“ Fyrirtækið Landar ehf. annast löndunarþjónustu fyrir HB Granda. Frá því að frystigeymslan var tekin í notkun á sjómannadaginn 2. júní í fyrra hefur ferðum stórra flutningabíla fækkað um 560 í gegnum miðbæinn, en það jafngildir flutningum á um 7.000 tonnum með frostnar sjávarafurðir,“ að sögn Reynis Daníelssonar, framkvæmdastjóra. Hann segir að fyrir tilkomu Ísbjarnarins hafi flutningabílar þurft að aka með tóma gáma frá Sundahöfn niður á Granda; Sæbrautina, framhjá Hörpu og í gegnum Geirsgötu og Mýrargötu, þar sem er mikið mannlíf hvern dag - og svo aftur sömu leið til baka fulllestaðir. „Þetta hefur sparað 560 túra í gegnum miðbæinn, sem er mikið. Þetta skiptir máli þegar haft er í huga að farið er um þröngar götur á þessari leið - og oft mikið af fólki,“ segir Reynir. En málið lítur að fleiri hlutum en bættri mannvist í miðborginni. Með Ísbirninum hefur meðferð viðkvæmrar vöru, sem fryst sjávarfang er, gjörbreyst til batnaðar. „Varan fer betur þegar hún er færð beint frá skipi og í frost, þar sem hún bíður útskipunar. Við löndun er þetta 30 metrar beint í hús þannig að hitastigið helst í vörunni, fyrir utan það að varan verður ekki fyrir óþarfa hnjaski í flutningum,“ segir Reynir.
Mest lesið „Kostuðu páskaeggin sjö hundruð þúsund krónur?!“ Innlent „Hann er bara dáinn“: Telur að mistök hafi verið gerð hjá Neyðarlínunni Innlent Fyrsti mótframbjóðandi formannsins rekinn af skrifstofunni Innlent Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp en fimm mál felld niður Innlent Engin egg í Skaftahlíðina Innlent „Bandaríkin verða ekki lengur til staðar fyrir ykkur“ Erlent Ætla að fara fram á frávísun málsins Innlent Í meðferð eftir fjárdrátt hjá Viðreisn Innlent Mesta kvikusöfnun til þessa Innlent Stöðvuðu ferðamenn sem reyndust ekkert grunsamlegir Innlent Fleiri fréttir Veiðimenn klæði sig í föðurlandið á morgun Mesta kvikusöfnun til þessa Maðurinn er kominn í leitirnar „Ég stend ekki hér út af minni fortíð“ Tengdust þjófnaðinum ekki á nokkurn hátt Ætla að fara fram á frávísun málsins Handteknir eftir vopnaða líkamsárás Engin egg í Skaftahlíðina Stöðvuðu ferðamenn sem reyndust ekkert grunsamlegir Logi hleypur í skarðið fyrir Jóhann Pál Guðmundur Ingi leiðir Flokk fólksins Bein útsending: Flokkur fólksins kynnir efstu fimm Vilja 140 milljarða skattalækkun og sölu ríkiseigna fyrir 680 milljarða Fyrsti mótframbjóðandi formannsins rekinn af skrifstofunni Edition-málið komið aftur til saksóknara og farbann framlengt Skúli Tómas: Áfall að ákært sé í einu máli Þremur vísað úr landi eftir að hafa stolið fatnaði „Þetta er í fyrsta sinn á ævinni sem mér er stefnt fyrir eitthvað“ Engin þjóðarsátt án skýrra aðgerða „Við krossum bara fingur“ „Kostuðu páskaeggin sjö hundruð þúsund krónur?!“ Útlit fyrir að rætist úr páskaveðrinu og ASÍ kallar eftir frumkvæði frá ríkisstjórninni Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp en fimm mál felld niður Ekki sannfærð um aðild en kallar eftir kjölfestu í umræðu Gripinn með fíkniefni í bíl um borð í Norrænu Í meðferð eftir fjárdrátt hjá Viðreisn Hellisheiði opin en Þrengsli enn lokuð Færri strætóferðir um páskana Fær vægari dóm en greiðir hærri miskabætur Hellisheiðin opin að nýju og snjókoma í borginni Sjá meira