Lýsa yfir þungum áhyggjum af árásargirni Rússa Atli Ísleifsson skrifar 30. ágúst 2014 13:12 Petró Pórósjenkó Úkraínuforseti og José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, hittust á fundi fyrr í dag. Vísir/AFP
Utanríkisráðherrar aðildarríkja ESB hafa lýst yfir þungum áhyggjum af „árásargirni Rússa í garð Úkraínumanna“. Leiðtogar aðildarríkja sambandsins koma saman síðar í dag og íhuga nú að beita Rússum frekari viðskiptaþvingunum vegna framgöngu þeirra í Úkraínudeilunni. Einnig stendur til að ná samkomulagi um hverjir skulu gegna stöðu forseta leiðtogaráðsins og stöðu utanríkismálastjóra næstu misserin. Catherine Ashton, utanríkismálastjóri sambandsins, hvatti Rússa til að draga herlið sitt til baka frá landamærum Úkraínu þegar í stað og stöðva allar vopnasendingar til aðskilnaðarsinna. Rússar hafa hins vegar hafnað öllum ásökunum um að þeir styðji við bakið á aðskilnaðarmönnum í austurhluta Úkraínu. Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, varaði rússnesk stjórnvöld við að ESB væri reiðubúið að standa með grunngildum sínum og kallaði eftir pólitískri lausn áður en deilan nái þeim tímapunkti „að ekki verði aftur snúið“. Petró Pórósjenkó Úkraínuforseti mun sækja leiðtogafundinn síðar í dag og segir Úkraínu vera fórnarlamb hernaðarlegs yfirgangs og hryðjuverka af hendi þúsunda erlendra hermanna og fleiri hundruð skriðdreka. Talsmaður Úkraínuhers sagði rússneska skriðdreka hafa ráðist á bæinn Novosvitlivka, nærri Luhansk og „svo gott sem eyðilagt sérhvert hús.“ Sunnar hafa íbúar flúið hafnarborgina Mariupol, eftir að aðskilnaðarsinnar náðu tökum á bænum Novoazovsk, skammt frá Mariupol, skömmu fyrir helgi. Vladimír Pútín Rússlandsforseti kennir Úkraínumönnum um ástandið í landinu og líkti í gær umsátri Úkraínuhers um Donetsk og Luhansk við umsátur nasista um Leníngrad í seinna stríði.Í frétt BBC segir að áætlað sé að um 2.600 hafi fallið í átökum aðskilnaðarsinna og úkraínska hersins. Deilan um héruðin Donetsk og Luhansk spruttu upp í apríl í kjölfar innlimunar Rússa á Krímskaga í mars.
Mest lesið Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Innlent Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Erlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Uppnám í Dettifossmálinu vegna óvænts gagns Innlent Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Erlent Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð Innlent Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Erlent Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Erlent Tafir við gönguljós á Hringbraut ekki vegna bilunar Innlent Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Erlent Fleiri fréttir Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám Sjá meira