Sorphirðan snemma á ferð til að festast ekki í umferðinni Atli Ísleifsson skrifar 2. desember 2014 09:51 Guðmundur B. Friðriksson segir sorphirðumenn Reykjavíkurborgar aldrei byrja fyrir klukkan sjö. Vísir/GVA „
Meginástæðan fyrir því að við viljum byrja snemma er að við viljum vera komin á göturnar áður en umferðin hefst þannig að við sitjum ekki föst með okkar vinnuflokka í umferðinni,“ segir Guðmundur B. Friðriksson, skrifstofustjóri umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg. Guðmundur var í viðtali í Bítinu þar sem hann svaraði spurningum umsjónarmanna þáttarins sem sögðust þykja sorphirðubílarnir oft vera fullsnemma á ferðinni. Guðmundur segir sorphirðumenn Reykjavíkurborgar aldrei byrja fyrir klukkan sjö. Hann segir þó einnig vera önnur fyrirtæki á markaði sem hirði sorp og að möguleiki sé á að einhver þeirra byrji fyrir klukkan sjö. „Þeir gætu byrjað inni í hverfum þar sem ekki er mikil íbúabyggð. Ég þori ekki alveg að fara með það.“ Með því að byrja snemma sleppi sorphirðufólk við morgunumferðina þar sem oft myndist langar raðir þaðan sem það er að fara, meðal annars úr Gufunesi.Þannig að það er ástæðan, að þið viljið ekki lenda í umferðinni?„Það og líka að við þurfum að fara í ákveðnar götur snemma morguns, eins og Laugaveginn og ákveðin svæði, og höfum þarna tækifæri áður en umferðin hefst. Við sækjum okkar mannskap fyrir klukkan sjö en byrjum ekki að losa fyrr en klukkan sjö,“ segir Guðmundur.Hafa borist kvartanir?„Já, það gerist en það er ekki mjög algengt. Það gerist einstaka sinnum, kannski helst frá þeim sem við byrjum snemma hjá. Við reynum að fara mjög hljótt um þannig að það heyrist ekki mikið í okkur. Við reynum að brýna því fyrir starfsfólki að fara hljóðlega um. Að vera ekki að reka tunnurnar mjög harkalega utan í tröppur eða veggi eða annað. Það heyrist hins vegar alltaf í bílnum okkar, sorphirðubílnum. Pípið er hlutur sem við losnum ekki við. Við þurfum alltaf að bakka. Þú getur stýrt því þannig að við séum ekki að bakka inn langa botnlanga snemma morguns og byrjum þá á einhverjum öðrum götum. Þetta er löglegt píp og skylda að hafa þetta á bílunum. Þetta er náttúrulega öryggistæki fyrir þá sem eru að ganga í kringum bílinn að það sé píp þegar hann bakkar.“ Guðmundur svaraði einnig spurningum umsjónarmanna um hvort við Íslendingar séum almennt duglegir að endurvinna. „Við erum mjög dugleg að flokka sorpið okkar og mér finnst við alltaf vera að tala sjálf okkur niður. Þó við séum ekki byrjuð á ákveðnum flokkum við heimili, að veita þá þjónustu – það er að segja Reykjavíkurborg, einkaaðilar veita þá þjónustu – þá erum við mjög dugleg að flokka.“
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Innlent Fleiri fréttir Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Sjá meira