Vöknuðu við skilaboðin: „Dangerous Situation“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 20. nóvember 2014 13:49 Dagný og Berglind eru liðsfélagar hjá Florida State. Vísir/AP
Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir eru nemendur við Florida State University þar sem byssumaður særði þrjá í nótt áður en hann var skotinn til bana af lögreglu á háskólasvæðinu. „FSU ALERT! Dangerous Situation! Main Campus - Tallahassee,“ voru skilaboðin sem biðu í farsímum þeirra Berglindar og Dagnýjar þegar þær vöknuðu í morgun. „Ég á að vera í skólanum en honum var lokað útaf skotárásinni,“ segir Dagný í samtali við Vísi. Hún átti að mæta í tíma klukkan átta í morgun og vaknaði rétt upp úr sjö. Skilaboðin að ofan blöstu við og um leið kviknuðu spurningar hjá knattspyrnukonunni frá Hellu.Þrír særðust en byssumaðurinn var skotinn til bana.Vísir/APOft farið á bókasafnið „Venjulega kemur fram hvers vegna send er út viðvörun. Útaf stormi eða öðru. Þarna var bara viðvörunin en engar upplýsingar,“ segir Dagný. Hún skoðaði í kjölfarið tölvupóstinn sinn þar sem frekari upplýsingar var að finna. Þar hafði fólk verið hvatt til að halda sig innandyra og frá gluggum. Í ljós kom að árásin hafði átt sér stað á aðalbókasafninu í skólanum. Einn liðsfélagi Dagnýjar var einmitt á bókasafninu fram á nótt en hafði yfirgefið svæðið örfáum mínútum áður en maðurinn lét til skarar skríða. „Ég var oft á bókasafninu fyrsta árið mitt og fer ennþá þangað þegar ég er að vinna í hópverkefnum. Ég þekki fullt af fólki sem fer þangað að læra,“ segir Dagný. Hún bendir á að aðeins tvær vikur séu í próf og því hafi verið nokkuð þétt setinn bekkurinn á bókasafninu þrátt fyrir að komið var verið vel fram yfir miðnætti. Þær stöllur búa saman í nágrenni háskólasvæðisins og telur Dagný að hún sé um sjö mínútur á bókasafnið á vespunni sinni. „Þetta er mjög skrýtin tilfinning því maður upplifir sig alltaf svo örugga. Hvað þá á bókasafninu,“ segir Dagný.Í frétt Washington Post kemur fram að nemendur hafi falið sig undir skrifborðum og bak við bókahillur. Aðrir hafi lokað sig af inni í herbergjum. Sumir hafi tekið upp atburðarásina á síma sína þar sem þeir hlupu í skjól eftir göngum bókasafnsins.Fundur hjá liðinu í hádeginu Særður nemandi sást öskra „Ég varð fyrir skoti“ um leið og hann hélt um fótinn sinn á meðan blóð fossaði yfir buxur hans. Áður höfðu í það minnsta tveir særst. Byssumaðurinn, sem ekki hefur verið uppgefið hver var, var skotinn af lögreglumönnum í Tallahassee eftir að hann skaut í áttina að þeim fyrir utan bókasafnið. Klukkan fjögur í morgun að staðartíma var hættuástandi aflétt. Enn er óvíst hvernig maðurinn komst inn á bókasafnið. „Ég skil það ekki. Maður þarf að vera með Florida State kort til að komast inn á bóksafnið,“ segir Dagný. Hún bendir þó á að vel geti verið að hann hafi einfaldlega stokkið yfir öryggisgrindverkið. Þótt skóli falli niður í dag reiknar Dagný með því að lið þeirra Berglindar æfi. Boðað hefur verið til fundar í hádeginu þar sem hún reiknar með að tíðindi næturinn verði á dagskrá. Allajafna hittist liðið aðeins í hádeginu á leikdegi. Stelpurnar mæta liði Northeastern University í 32-liða úrslitum NCAA háskólaboltans á morgun. Vinni þær sigur sem flestir reikna með eiga þær annan leik, einnig á heimavelli, fyrir höndum í 16-liða úrslitum á sunnudag.
Mest lesið „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Innlent „Það verða engir konungar“ Erlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Innlent Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Innlent Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs Innlent Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Innlent Fleiri fréttir Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Bretar banna samfélagsmiðlanotkun upp að 16 ára aldri Réðust á dómkirkjuna í Kænugarði Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Sjá meira