Leit hafin á ný í Ölfusá Gissur Sigurðsson og Kjartan Atli Kjartansson skrifar 14. nóvember 2014 09:52 Frá leitinni í nótt. Vísir/Magnús Hlynur
Leit er hafin á ný að bíl sem ekið var út í Ölfusá á móts við Hótel Selfoss um klukkan hálf ellefu í gærkvöldi. Hátt í áttatíu manns leituðu án árangurs langt fram á nótt. Nú eru um fjörutíu til fimmtíu manns sem leita bílsins. Meðal annars sigla björgunarsveitarmenn bát upp og niður ána. Einnig er leitað frá bökkum árinnar. Leitarmenn ganga með fram ánni og verið er að safna saman mannskap til þess að ganga niður alla ána og jafnvel niður að óseyrarbrú. Nokkir leitarmenn fylgjast sem með úr meiri hæð og skima yfir svæðið. Kafarar eru að meta stöðuna, vegna straumhörkunnar á svæðinu sem maðurinn fór út í. Talið er að allt að hundrað manns muni taka þátt í leitinni í dag. Vitni var að atvikinu í gærkvöldi. Það tilkynnti lögreglu þegar hvers kyns var og voru björgunaraðilar kallaðir út. Meðal annars kafarar með málmleitartæki og þyrla gæslunnar flaug yfir leitarsvæðið í nótt. Mjög djúpt og straumþungt er þar sem bíllinn fór út í og kann hann að hafa borist langt frá vettvangi. Talið er víst að einn maður sé í bílnum og er vitað hver hann er. Björgunaraðilar koma saman til fundar innan stundar þar sem leitarstarfið í dag verður skipulagt. Þegar er ákveðið að bakkar árinnar verði gengnir niður undir Ölfusárós. Síðast fór bíll út í Ölfusá árið 1990. Þá drukknuðu tveir, en tveimur var bjargað.
Tengdar fréttir Bíll fór út í Ölfusá Umfangsmikil leit stendur yfir við ánna og taka um hundrað manns þátt. 13. nóvember 2014 23:27 Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent „Ég get ekki annað en sagt satt“ Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Innlent Fleiri fréttir Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Ákærð fyrir að kæfa son sinn með kodda Börn lögð inn með kíghósta „Við reyndum eins og við gátum“ Framkvæmdanefnd fyrir Grindavík sett á laggirnar Sambærileg rúðubrot í Lækjargötu og á Skólavörðustíg Skipar framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Sjá meira
Bíll fór út í Ölfusá Umfangsmikil leit stendur yfir við ánna og taka um hundrað manns þátt. 13. nóvember 2014 23:27