Auðvelt að koma í veg fyrir að streymt sé úr vefmyndavélinni þinni 7. nóvember 2014 13:59 Friðrik segir að söluaðilar vefmyndavél ættu að upplýsa notendur ef þeir þurfa að uppfæra öryggisstillingar. Vísir
Tiltölulega einfalt er að loka á aðgang óviðkomandi aðila að vefmyndavélum. Vísir sagði í morgun frá því að erlend vefsíða streymi myndum úr tugþúsundum vefmyndavéla víða um heim, þar á meðal Íslandi. „Þetta er ekki endilega hlutur sem fólk hugsar út í. Fólk hugsar út í að læsa hurðum og taka lyklana úr bílnum,“ segir Friðrik Skúlason, tölvunarfræðingur og öryggissérfræðingur, um málið. „Sumar af þessum vefmyndavélum sem fólk kaupir út í búð koma með öryggisgalla og ef fólk uppfærir ekki hugbúnaðinn þá er myndavélin galopin. Sumar koma líka með sjálfgefnu lykilorði og ef fólk veit IP-töluna að þeim, eða prófar þessvegna bara hundruð eða þúsundir af IP-tölum, þá getur það komist inn bara með þessu lykilorði sem kemur frá framleiðanda,“ útskýrir hann. „Þetta er eins og að segja fólki að skilja ekki lyklana í lásnum á bílnum þegar það fer út úr honum,“ segir Friðrik. Hann bendir hinsvegar á að þó að einfalt sé að skipta um lykilorð og uppfæra hugbúnað vefmyndavéla sé ekki sjálfgefið að fólk viti hvenær þess sé þörf. Friðrik segir að vandamálið sem um ræðir eigi ekki við um allar vefmyndavélar. „Fólk hugsar ekki út í þetta. Þú kaupir vefmyndavél út í búð og venjulegum notanda dettur ekki endilega í hug sem fyrsta verk að fara á netið og leita að öryggisuppfærslu fyrir myndavélina sína,“ segir Friðrik. „Sömuleiðis dettur þér ekki endilega í hug að það sé eitthvað eitt lykilorð sem er harðkóðað inn og þarf að breyta sérstaklega.“ Að mati Friðriks ættu söluaðilar vefmyndavél að upplýsa notendur ef þeir þurfa að uppfæra öryggisstillingar. „Hinn almenni notandi er ekki öryggissérfræðingur,“ segir hann. „Það má í rauninni segja að ábyrgðin sé að hluta til að vera söluaðila sem selja þessar vélar. Þeir eiga að vera með tækniþekkinguna,“ segir Friðrik sem bendir á að söluaðilar gætu látið fylgja leiðbeiningar með vélum sem fólk gæti stuðst við til að fyrirbyggja öryggisvandamál. „Fólk kaupir þessa vöru án þess að vita af þessum öryggisgalla. Það er kannski vandamálið.“
Tengdar fréttir Stelast inn á íslenskar vefmyndavélar: Streyma myndum um allan heim Nýta sér að notendur hafa ekki breytt sjálfgefnum lykilorðum vélanna. Birta myndir úr 73 þúsund vefmyndavélum um allan heim. 7. nóvember 2014 11:46 Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira
Stelast inn á íslenskar vefmyndavélar: Streyma myndum um allan heim Nýta sér að notendur hafa ekki breytt sjálfgefnum lykilorðum vélanna. Birta myndir úr 73 þúsund vefmyndavélum um allan heim. 7. nóvember 2014 11:46