Vill vísindaleg rök en ekki pólitísk tilfinningarök Samúel Karl Ólason skrifar 27. september 2014 10:07 Frá allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Vísir/AFP/Daníel
Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, tók þátt í ráðherrafundi um málefni hafsins sem haldinn var samhliða allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í gær. Þar fjallaði hann um þau atriði sem Ísland leggur áherslu á að verði leiðarljós í mótun nýrra markmiða um sjálfbæra þróun, sem til stendur að samþykkja á allsherjarþingi að ári. Í tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu segir að Gunnar Bragi hafi í fyrsta lagi sagt að auðlindir hafsins beri að nýta á sjálfbæran hátt til að auka fæðuöryggi á heimsvísu og berjast gegn fátækt. Þá sagði hann að efla þyrfti ábyrga fiskveiðistjórn, leggja af opinbera styrki í sjávarútvegi og berjast gegn ólöglegum fiskveiðum. Þar að auki fjallaði hann um að brýnt væri að vernda vistkerfi sjávar og berjast gegn mengun í hafi. Einnig þyrfti að byggja upp getu meðal þróunarríkja til að styrkja fiskveiðistjórnun og verndun á auðlindum hafsins. „Á fundinum lagði ég áherslu á að ríki heims verði að geta nýtt auðlindir sjávar með sjálfbærum hætti þar sem ákvarðanir stjórnmálamanna byggist á vísindalegum rökum en ekki á pólitískum tilfinningarökum. Í hafinu eru vannýttar auðlindir en slök fiskveiðistjórn leiðir á sama tíma víða til ofveiði. Ísland mun áfram beita sér fyrir því að alþjóðleg stefnumörkun taki á þessum vanda og að skynsamlega verði tekið á sjónarmiðum bæði nýtingar og verndunar á þessum dýrmætu auðlindum,“ er haft eftir Gunnari Braga í tilkynningunni. Fyrr um daginn tók hann þátt í ráðherrafundi aðildarríkja Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE( um öryggishorfur í Evrópu. Þar sagði Gunnar Bragi að innlimun Krímskaga ógni öryggi í Evrópu. Vísaði hann til þess að Helsinki yfirlýsingin sem er grundvöllur starfsemi ÖSE feli í sér ákveðin grundvallargildi í samskiptum aðildarríkjanna. Meðal annars beri að virða sjálfstæði ríkja og fullveldi landamæra. Ekki skuli beita hernaðarafli í deilumálum. Gunnar Bragi benti á þau skref sem úkraínsk stjórnvöld hafa tekið nýverið til að auka réttindi héraða í Austur-Úkraínu og hvatti rússnesk stjórnvöld til að bregðast við þeim á uppbyggilegan hátt.
Mest lesið SAS fellir niður allt flug til Grænlands Erlent Andlát í fangelsinu á Hólmsheiði í nótt Innlent Hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum frá upphafi Innlent Ætli sér ekki að banna hinsegin fánann Innlent Dúx í MH og talar fjögur tungumál Innlent „Við þurfum að bregðast við því ákalli, það er augljóst“ Innlent Fleiri ferðir felldar niður og ekkert samkomulag í sjónmáli Innlent Er tilbúin að blása í herlúðra í haust Innlent Afsögn enn ódagsett Innlent Skjálftahrina á Hellisheiði hófst í morgun Innlent Fleiri fréttir „Það er enginn réttindagæslumaður starfandi á landsbyggðinni“ Senda loftbelgi á loft á hálftíma fresti á meðan sólmyrkvinn stendur yfir Undirbúa íbúafund þar sem farið verði yfir stöðu mála Líkamsárás á veitingastað í miðborginni og umfangsmikill þjófnaður Skjálftahrina á Hellisheiði hófst í morgun Fengu innblástur úr Vesturbænum þar sem börn mótmæltu Sjálfsvíg í fangelsum of algeng Afsögn enn ódagsett Er tilbúin að blása í herlúðra í haust Dúx í MH og talar fjögur tungumál Loka skrifstofum vegna óvissu um framtíð heilbrigðiseftirlits Ætli sér ekki að banna hinsegin fánann „Við þurfum að bregðast við því ákalli, það er augljóst“ Leigufélög gætu gleypt húsnæðismarkaðinn Andlát í fangelsinu á Hólmsheiði í nótt Vinnumarkaður, verðbólga og ESB í Sprengisandi í dag Skjálfti upp á 2,8 við Hellisheiði Fræsa og malbika Vesturlandsveg í kvöld Ók rafmagnshjólinu á bíl í 101 Áverkar geti sagt til um kraft sem er beitt í kyrkingu Menntaskólanum í Reykjavík slitið í 180. sinn Fleiri ferðir felldar niður og ekkert samkomulag í sjónmáli Hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum frá upphafi Fimm handteknir og um mikið magn sterkra fíkniefna að ræða „Okkur þykir vænt um svæðið og við höfum áhyggjur af því“ Engir Framsóknarfingur í kökukrúsinni í Kópavogi Nágranni fluttur á HSS eftir bruna í Vogum Skoða veitingu íslensks ríkisborgararéttar Segir magnað að fá að sjá verk Bjarkar á Listahátíð „Trúi varla að Viðreisn sé á móti því að flagga hinsegin fánanum“ Sjá meira