Segja gömul gögn að baki gagnrýni OECD Svavar Hávarðsson skrifar 12. september 2014 07:00 mynd/þröstureysteinsson
Forsvarsmenn sauðfjárbænda draga niðurstöður nýrrar umhverfisskýrslu Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD) um samhengi landbúnaðarstyrkja og gróður- og jarðvegseyðingu vegna ofbeitar stórlega í efa. Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda, segir að umfjöllun OECD um beitarmál sé fjarri því aðalatriði í úttekt stofnunarinnar. „Hins vegar hefði OECD og samstarfsaðilar þeirra hérlendis þurft nýrri gögn til stuðnings því sem haldið er fram. Ályktanir þeirra byggjast m.a. á gömlum heimildum frá því á 9. áratug síðustu aldar,“ segir Sigurður sem bætir við að aðstæður hafi breyst mikið á síðustu árum. Þarna vísar Sigurður til úttektarinnar Jarðvegsrof á Íslandi sem kom út árið 1997, og vitnað er ítrekað til í úttektinni. Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri tók undir gagnrýni OECD í viðtali við Fréttablaðið í vikunni og telur hann að misvægið á milli styrkja og mótvægisaðgerða í landgræðslu verði að jafna; draga úr styrkjum og auka fé til landbóta. Sveinn telur að landnýting sé fjarri því sjálfbær og að ákvæði um gæðastýringu sauðfjárræktar frá búvörusamningi ársins 2000 hafi ekki gengið nægilega langt. Sigurður segist ósammála mati landgræðslustjóra. „Fyrir það fyrsta fer Landgræðslan með eftirlit með landnýtingu hjá þeim sem taka þátt í gæðastýrðri sauðfjárframleiðslu. Hafi því eftirliti ekki verið nægilega sinnt undanfarin ár þá er fyrst og fremst við stofnunina sjálfa að sakast,“ segir Sigurður og bætir við að fleira komi til. „Mun færra fé er í landinu í dag en fyrir 30 árum, eða um helmingur þess sem var þegar það var mest um 1980. Fyrr á árum var sauðfé beitt úti á vetrum sem skapaði oft verulegt álag á landið. Það er nú liðin tíð,“ segir Sigurður. Um 600 bændur um allt land starfa innan raða verkefnisins „Bændur græða landið“ í samvinnu við Landgræðsluna. „Við viljum gjarnan vinna áfram með Landgræðslunni að landbótum og uppgræðsluverkefnum, því bændur eiga auðvitað allt sitt undir því að geta nýtt landið til framtíðar litið,“ segir Sigurður. Skógrækt ríkisins bregst við skýrslu OECD Skógrækt ríkisins birti umfjöllun um þetta álitamál á vefsíðu sinni í gær. Þar er tekið undir gagnrýni OECD, en jafnframt bent á að íslensk stjórnvöld eru gagnrýnd harðlega í skýrslunni fyrir lítið eftirlit og að rofskýrslunni frá 1997 skuli ekki hafa verið fylgt eftir. Þrennt þarf að gera til að bregðast við skýrslunni: Að koma á vörsluskyldu búfjár í landinu og leggja af löngu úrelt beitarfyrirkomulag með lausagöngu sauðfjár. Að fylgja eftir skýrslunni Jarðvegsrof á Íslandi frá 1997 með vöktun á ástandi lands með mælanlegum vísum eða mælikvörðum. Rétt eins og fylgst er stöðugt með veðurfari og um það safnað gögnum er nauðsynlegt að hafa á hverjum tíma tiltæk gögn um ástand gróðurþekjunnar, gróðurframvindu, gróðureyðingu og jarðvegsrof. Að stórauka skógrækt á láglendisauðnum. Á þeim illa eða ógrónu láglendissvæðum sem nema 12% landsins búa mikil tækifæri til uppgræðslu með skógrækt.
Mest lesið Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Innlent Hegðun Trumps vonbrigði Innlent Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Innlent Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Innlent Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Innlent Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Innlent Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Innlent Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Innlent Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Fleiri fréttir Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar Trump um útrýmingu Íran Vinna áfram að alþjóðahöfn og iðnaðarsvæði í Finnafirði Hegðun Trumps vonbrigði Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Kosningaspá Vísis: Lítill munur á vinstri og hægri í borginni Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Rafmagnslaust var í hluta Seltjarnarness og Vesturbæjar Skipverjar og hafnarverkamenn boða verkfall Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Hótun um útrýmingu, ný kosningaspá og óvenjulegt þrumuveður Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Krapaspýja lokar Vestfjarðavegi Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Ekki hlutverk grunnskóla að kenna börnum sjálfsvörn Rafmagnsleysið og sjálfsvarnarkennsla Stakk og skar fórnarlambið á háls Auglýstu eftir framboðum og skelltu í lás yfir páska Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Keflavíkurflugvöllur á varaafli vegna eldingar Þau skipa lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Sjá meira