Nýr hjólastígur í Reykjavík Stefán Árni Pálsson skrifar 16. september 2014 16:25 mynd/reykjavíkurborg.
Nýr hjólastígur var opnaður í dag og markaði þessi einfalda athöfn upphaf árvissrar samgönguviku í Reykjavík, en markmið hennar er að hvetja fólk til umhugsunar um eigin ferðavenjur og virkja það til að nota almenningssamgöngur, hjóla eða ganga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Hjálmar Sveinsson formaður umhverfis- og skipulagsráðs sagði þegar hann opnaði stíginn formlega að stefna Reykjavíkurborgar væri að gera hjólreiðar að alvöru valkosti. Áhersla væri á uppbyggingu hjólastíga á öllum meginleiðum og með slíkri uppbyggingu væri hlúð að vistvænum samgöngum. Undanfarin ár hafa endurbætur verið gerðar á hjólastígum í Reykjavík og áfram verður haldið á sömu braut. Fram kemur í tilkynningunni að samkvæmt hjólreiðaáætlun borgarinnar sé stefnt að fimmföldun hjólastíga á fimm árum og tíföldun á tíu árum. Í tilkynningunni segir að hönnun hjólaleiða fari eftir aðstæðum á hverjum stað og því er þörf á fjölbreyttum lausnum. Miðað er við að aðskilja hjólandi og gangandi umferð og skapa rými fyrir reiðhjól í umferðinni þar sem því verður komið við, eins og segir í aðalskipulagi Reykjavíkur. Stígurinn nýi liggur frá Suðurhlíð, nálægt vesturenda göngu- og hjólabrúar yfir Kringlumýrarbraut, upp að Sléttuvegi. Leiðin fyrir hjólreiðafólk verður því mun greiðari og fljótfarnari en eldri leiðir um hverfið. Meðfram Kringlumýrarbraut að vestanverðu var í sumar einnig lagður hjólastígur frá Laugavegi að Sóltúni.
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fleiri fréttir Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Sjá meira