Svört skýrsla um barnaníð veldur titringi í Bretlandi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 2. september 2014 14:13 Theresa May gegnir stöðu innanríkisráðherra fyrir Íhaldsflokkinn Vísir/Getty
Theresa May, innanríkisráðherra Bretlands, gagnrýnir lögreglu og félagsmálayfirvöld í Rotherham harðlega fyrir að bregðast um 1400 börnum og ungmennum sem voru misnotuð kynferðislega af hópi manna í bænum á árunum 1997 til 2013. May sagði á breska þinginu að tryggja yrði að gerendurnir yrðu sóttir til saka.Hún lagði einnig áherslu á að allir opinberir aðilar væru samábyrgir fyrir því að tryggja öryggi barna í landinu. Innanríkisráðherrann hyggst boða til fundar með ráðherrum í ríkisstjórninni þar sem skoðað verður hvað gera megi til að koma í veg fyrir að slíkir atburðir endurtaki sig. Málið hefur vakið mikinn óhug í Bretlandi en um það var fjallað í ítarlegri skýrslu sem kom út í seinustu viku. Í skýrslunni kemur fram að hundruðum barna hafi ítrekað verið nauðgað, þau flutt á milli borga og bæja í Norður-Englandi og verið beitt líkamlegu og andlegu ofbeldi af fjölmennum glæpagengjum karlmanna.Yfirvöld og lögregla í South Yorkshire og Rotherham sitja undir harðri gagnrýniVísir/GettyYfirvöld í Rotherham og lögreglan í South Yorkshire eru sökuð um alvarlega vanrækslu í tengslum við málið en svo virðist sem óyggjandi sannanir hafi legið fyrir árum saman án þess að gripið hafi veriðtil nokkurra aðgerða. Meirihluta gerendanna er af asískum uppruna en þolendurnir hvítar stúlkur.Talið er að málinu hafi verið sópað undir teppi m.a. af ótta opinberra starfsmanna við að vera sakaðir um kynþáttahatur ef þeir tækju málið upp. Skýrslan hefur valdið miklum titringi innan Verkamannaflokksins en Shaun Wright, lögreglustjóri í South Yorkshire, var yfirmaður þjónustu sem veitt er börnum í Rotherham á því fimm ára tímabili þegar brotin áttu sér stað. Hann hefur nú sagt sig úr Verkmannaflokknum en neitar að segja af sér sem lögreglustjóri. Búist er við að Wright komi fyrir þingnefnd á næstu dögum til að svara fyrir vanrækslu lögreglu í málinu. Þá hefur forysta Verkamannaflokksins rekið fjóra aðra úr flokknum sem einnig gegndu ábyrgðarstöðum á því sextán ára tímabili sem brotin voru framin.
Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Fleiri fréttir Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Sjá meira