Innlent

Dauðsfallið á Hvammstanga: Enn beðið niðurstöðu úr krufningu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá Hvammstanga.
Frá Hvammstanga. Vísir/Jón Sigurður
„Von er á skýrslu í lok vikunnar úr krufningu, vegna fráfalls Tomasz Krzeczkowski, sem lést eftir meinta líkamsárás á Hvammstanga fyrr í mánuðinum.“ Þannig hófst frétt á Vísi þann 24. júní síðastliðinn. Síðan eru liðnar tíu vikur og enn bólar ekkert á niðurstöðu úr krufningunni.

„Við erum að verða jafnspenntir og þið,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, sem Vísir hefur verið í reglulegu sambandi við undanfarna rúma tvo mánuði. Hann segir í raun aðeins beðið eftir niðurstöðu krufningar en í kjölfarið verði það sent til ríkissaksóknara.

Tveir menn, feðgar sem bjuggu í húsinu á Hvammstanga þar sem Krzeczkowski fannst, eru grunaðir um að hafa banað honum aðfaranótt sunnudagsins 15. júní. Sæta þeir farbanni. Fjórir voru í fyrstu handteknir en tveir þeirra liggja ekki undir grun.

Jón Gunnlaugur Jónasson.Vísir/Vilhelm
Ársgamlar krufningar enn óafgreiddar

Jón Gunnlaugur Jónasson, yfirlæknir rannsóknastofu í meinafræði, segir margt spila inn í hvers vegna langan tíma geti tekið að fá niðurstöður úr krufningum sem eru tvenns konar; réttarkrufning og spítalakrufning. Réttarkrufningar eru unnar fyrir lögregluyfirvöld og geta t.d. verið morðrannsóknir, sjálfsvíg og umferðarslys.

„Sjálf krufningin er í rauninni gerð tiltölulega fljótlega eftir andlát,“ segir Jón Gunnlaugur. Það taki í raun aðeins nokkra daga. Svo taki aðrir hlutir lengri tíma áður en hægt er að senda frá sér lokaskýrsluna.

„Tilgangurinn er að reyna að leiða í ljós þá atburðarás sem leiðir til andláts,“ segir Jón Gunnlaugur um réttarkrufningar. Taka þarf sýni úr líffærum, vinna þau til smásjárrannsókn, framkvæma efnamælingar og lyfjarannsóknir á sýnum bæði úr blóði og vefjum.

„Ítarleg greining á sýnum geta tekið allt að þrjá mánuði.“

Um sérfag sé að ræða, réttarmeinafræði, og aðeins einn Íslendingur hafi sótt sér þá menntun. Sá læknir hafi hins vegar starfað í Bandaríkjunum undanfarin átta ár. Tveir þýskir réttarmeinafræðingar starfa fyrir Landspítalann. Önnur hefur verið í fullu starfi frá áramótum en hin er í hálfu starfi. Er hún tvær vikur á Íslandi og tvær vikur í Þýskalandi.

Jón Gunnlaugur segir að reynt sé að hraða þeim málum sem beðið er eftir. Hins vegar hafi á síðasta ári aðeins einn starfsmaður gegnt hlutverki réttarmeinafræðings og verkefnin hafi hlaðist upp. Finna megi ársgamlar krufningar sem enn eigi eftir að afgreiða.

„Halinn sem var orðinn hefur styst verulega á meðan við höfum verið með þær tvær,“ segir Jón Gunnlaugur sem á við réttarmeinafræðingana þýsku. Sú í fullu starfi mun hverfa til síns heima í lok árs en Jón Gunnlaugur er bjartsýnn á að annar fáist í staðinn. Það hjálpi til að erlendir meinafræðingar sýni Íslandi það mikinn áhuga að hægt sé að fá þá til starfa hér á landi þó til skamms tíma sé.


Tengdar fréttir

Mögulegt fyrra höfuðhögg til skoðunar

Lögreglan á Akureyri hefur meðal annars til rannsóknar hvort maðurinn sem lét lífið af völdum höfuðhöggs um Hvítasunnuhelgina hafi viku fyrr fengið höfuðhögg í skírnarveislu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×