Innlent

Fjórmenningarnir í gæsluvarðhald

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá Hvammstanga.
Frá Hvammstanga. Vísir/Jón Sigurður
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur úrskurðað fjóra karlmenn, sem eru í haldi lögreglunnar á Akureyri grunaðir um aðild að stórfelldri líkamsárás á Hvammstanga um helgina, í gæsluvarðhald til kl. 16 næstkomandi sunnudag.

Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að rannsóknin sé á frumstigi og ekki sé hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu. Maðurinn sem slasaðist er í lífshættu en honum er enn haldið sofandi í öndunarvél. Áverkar hans eru alvarlegir og meðal annars á höfði.

Um er að ræða vinahóp á Hvammstanga en mennirnir voru í gleðskap í íbúð eins hinna meintu árásarmanna á laugardagskvöld.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×