Gamalt hús fær nýtt líf Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 20. ágúst 2014 19:45
130 ára gamalt sögufrægt hús hefur nú fengið nýtt líf, en því hefur verið fundinn varanlegur staður í miðbænum eftir að hafa staðið falið í iðnaðarhverfi úti á Granda síðustu ár. Gröndalshúsið svokallaða stóð við Vesturgötu 16 B en Sigurður Jónsson, járnsmiður, byggði húsið árið 1882 úr timbri sem barst til Íslands með gríðarstóru skipi sem rak mannlaust um hafið og strandaði í Höfnum. Sigurður bjó sjálfur í húsinu og hafði þar járnsmíðju til 1888 en þá eignaðist það skáldið og náttúrufræðingurinn Benedikt Gröndal og hefur það verið kennt við hann síðan. Hjörleifur Stefánsson, arkítekt, hefur haft umsjón með endurbótum á húsinu sem var fært í iðnaðarhverfið á Granda fyrir nokkrum árum. Húsið var oft kallað Púltið, Skrínan eða Skattholið vegna hins sérkennilega byggingarlags, en það er tvílyft að framan og einlyft að aftan. Búið var í húsinu til ársins 2004, en Reykjavíkurborg keypti það til varðveislu vegna menningarsögulegs gildis þess. Upphaflega stóð til að húsið yrði flutt í Árbæjarsafnið.
Tengdar fréttir Gröndalshús í hættu Undir lok vikunnar síðustu tók hópur manna sig til í Reykjavík og fór í blysför frá Þingholtsstræti að húsi Benedikts Gröndal við Vesturgötu 16b. Förin var gengin til að mótmæla áformum borgaryfirvalda sem nýlega keyptu húsið og hyggjast flytja það í Árbæ. 14. nóvember 2006 10:00 Gröndalshús í loftið í kvöld Í kvöld verður Gröndalshús híft af sökkli sínum að Vesturgötu 16 b og flutt út í Örfirisey þar sem Völundarverk Reykjavík er tímabundið með aðsetur til endurgerðar eldri húsa samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 14. janúar 2010 15:24 Gröndalshús verður gert upp og flutt „Þetta hús skiptir miklu fyrir sögu Reykjavíkur. Það er þarft að heiðra minningu Benedikts Gröndal og alls sem hann stóð fyrir varðandi bókmenntir og vísindi, og eins hefur húsið mjög sérstaka þýðingu í byggingarsögulegu tilliti. Því er mjög ánægjulegt að húsinu verði gert hátt undir höfði,“ segir Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri á menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar. 21. september 2009 03:15 Vatnsskemmdir í Gröndalshúsi Nokkrar vatnsskemmdir urðu þegar rör fraus og sprakk í Gröndalshúsi við Vesturgötu fyrir skömmu. Húsið er illa einangrað og þrátt fyrir upphitun gaf einn ofninn sig í kuldakastinu. 13. desember 2006 05:30 Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Fleiri fréttir Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Sjá meira
Gröndalshús í hættu Undir lok vikunnar síðustu tók hópur manna sig til í Reykjavík og fór í blysför frá Þingholtsstræti að húsi Benedikts Gröndal við Vesturgötu 16b. Förin var gengin til að mótmæla áformum borgaryfirvalda sem nýlega keyptu húsið og hyggjast flytja það í Árbæ. 14. nóvember 2006 10:00
Gröndalshús í loftið í kvöld Í kvöld verður Gröndalshús híft af sökkli sínum að Vesturgötu 16 b og flutt út í Örfirisey þar sem Völundarverk Reykjavík er tímabundið með aðsetur til endurgerðar eldri húsa samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 14. janúar 2010 15:24
Gröndalshús verður gert upp og flutt „Þetta hús skiptir miklu fyrir sögu Reykjavíkur. Það er þarft að heiðra minningu Benedikts Gröndal og alls sem hann stóð fyrir varðandi bókmenntir og vísindi, og eins hefur húsið mjög sérstaka þýðingu í byggingarsögulegu tilliti. Því er mjög ánægjulegt að húsinu verði gert hátt undir höfði,“ segir Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri á menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar. 21. september 2009 03:15
Vatnsskemmdir í Gröndalshúsi Nokkrar vatnsskemmdir urðu þegar rör fraus og sprakk í Gröndalshúsi við Vesturgötu fyrir skömmu. Húsið er illa einangrað og þrátt fyrir upphitun gaf einn ofninn sig í kuldakastinu. 13. desember 2006 05:30