Erlent

Risaskjálfti í Perú

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jarðskjálfti af stærðinni 7.0 stig reið yfir suðurhluta Perú í dag. Skjálftinn átti upptök sín um 61 kílómetra norðuaustur af borginni Puquio. Reuters greinir frá.

Jarðvísindastofnun Bandaríkjanna taldi skjálftann upphaflega 6.9 stig að stærð en hann varð á 59 kílómetra dýpi. Engin tíðindi hafa borist af mannfalli eða skemmdum að svo stöddu en nýjustu tíðindi í nótt má fá á vef Reuters.

Fyrr í dag varð jarðskjálfti af stærð 6.0 stig nærri Napa-dalnum í Kaliforníu á vesturströnd Bandaríkjanna. Fjölmargir þurftu að leita á sjúkrahús í kjölfar skjálftans.

Hér að neðan má sjá kort af skjálftavirkni dagsins í heiminum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×