Erlent

Íbúar Kalíforníu hreinsa til eftir skjálftann

Þessi brettakappi nýtti sér afleiðingar skjálftans til hins ítrasta í gær.
Þessi brettakappi nýtti sér afleiðingar skjálftans til hins ítrasta í gær. Vísir/AFP
Mikið hreinsunarstarf bíður íbúa Kalíforníuríkis í Bandaríkjunum eftir að jarðskjálfti sem mældist sex stig reið þar yfir í gær. Að minnsta kosti 130 slösuðust í skjálftanum sem átti upptök sín í vínræktarhéraðinu í Napa-dal.

Skjálftinn var sá öflugasti á svæðinu í 25 ár. Þrís slösuðust alvarlega, þar á meðal ungur drengur sem er lífshættulega slasaður eftir að skorsteinn féll á hann. Þá brutust víða út eldar, vatnsleiðslur rofnuðu og gasleka varð vart sumstaðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×