Mótmæli í Istanbúl vegna aukins straums flóttafólks Atli Ísleifsson skrifar 25. ágúst 2014 13:47 Sýrlenskir betlarar eru áberandi á götum Istanbúl. Vísir/AFP
Til átaka kom milli lögreglu og fleiri hundruð mótmælenda í tyrknesku borginni Istanbúl í gærkvöldi. Mótmælendur lýstu þar yfir óánægju með þeim mikla straumi Sýrlendinga sem hafa haldið yfir landamærin til Tyrklands vegna borgarastyrjaldarinnar í heimalandinu. Mótmælin áttu sér stað í Ikitelli-hverfinu í Evrópuhluta borgarinnar. Skemmdir voru unnar á verslunum, rúður brotnar og bílum velt þar sem ungmenni hrópuðu slagorð gegn Sýrlendingum. Tyrkneskir fjölmiðlar segja fimm hafa verið flutta á sjúkrahús. Áætlað er að um 1,2 milljónir Sýrlendinga hafi farið frá Sýrlandi og til Tyrklands vegna borgarastyrjaldarinnar. Í frétt BBC segir að sýrlenskir flóttamenn séu áberandi í Istanbúl, þar sem margir þeirra grípa til þess ráðs að betla á götum úti. Sameinuðu þjóðirnar áætla að tæpar þrjár milljónir Sýrlendinga hafi flúið land frá því að borgarastyrjöldin hófst. Flestir hafa farið til Líbanons, en fleiri hundruð þúsund flóttamanna hafa einnig haldið til Tyrklands, Jórdaníu og Íraks. Þá er áætlað að um 6,5 milljónir Sýrlendinga séu á vergangi innan landamæra Sýrlands.
Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Innlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Fleiri fréttir Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Sjá meira