Hávaxnasti maður heims látinn Kjartan Atli Kjartansson skrifar 26. ágúst 2014 10:34 Stadnyk var talinn vera 253 sentímetrar á hæð. Hér stendur hann við hliðina á manni sem er um 180 sentímetrar. Vísir/AFP
Úkraínskur maður sem er talinn vera sá hávaxnasti í heimi lést í gær, 44 ára að aldri. Banameinið var heilablæðing, en maðurinn, sem heitir Leonid Stadnyk, glímdi við ýmis heilsufarsleg vandamál alla ævi. Stadnyk vildi ekki leyfa aðilum frá Heimsmetabók Guinness að mæla sig en talið er að hann hafi verið 253 sentímetrar á hæð. „Að mínu mati er hæð mín einkonar bölvun. Ég veit ekki hvað ég gerði Guði til þess að þurfa að vera svona. Ég hef alltaf þráð að fá að vera eins og aðrir. Ég veit að ég er hávaxnasti maður heims, en mér finnst ég samt bjargarlaus. Þetta líf er fyrir lágvaxið fólk,“ sagði hann á sínum tíma og bætti við: „Ég vil ekki verða frægur fyrir hæð mína og því hef ég enga löngun til þess að vera í þessari heimsmetabók.“ Stadnyk sagðist ekki vilja gera kvenmanni það að vera með sér og forðaðist samband við hitt kynið alla ævi. Fætur Stadnyk voru 45,7 sentímetrar á lengd og þurfti hann að nota sérhannaða skó. Lófar hans voru um þrjátíu sentímetrar í þvermál. Stadnyk var bóndi en var menntaður dýralæknir. Ferill hans sem dýralæknir komst þó aldrei á flug. Hann þurfti að hætta vegna þess að það var erfitt fyrir hann að fá nauðsynlegan hlífðarfatnað í réttum stærðum. Hann sagði að það hafi verið erfitt að vera bóndi. „Að reyta arfa er afar erfitt þegar maður er jafn hávaxinn og ég,“ sagði hann.Í frétt um Stadnyk á vefsíðu breska miðilsins Mirror er sagt frá ferðlagi hans til Þýskalands, en hann ferðaðist afar lítið um ævina. „Það var ótrúlega gaman að koma þangað og sjá landið, en mér leið svolítið eins og geimveru,“ sagði hann. Þar í landi gekk illa að finna nógu stórt rúm fyrir Stadnyk og þurfti hann að sofa á billiard-borði. Nágrannar hans sögðu hann hafa verið afar góðhjartaðan mann, sem var alltaf tilbúinn að aðstoða náungann. „Hann var einn gjafmildasti og yndislegasti maður sem ég hef kynnst. Hann var góð sál,“ sagði einn nágranna Stadnyk. Hér að neðan má sjá myndband þar sem Stadnyk tjáir sig um lífið sem hávaxnasti maður heims.
Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Fleiri fréttir Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Sjá meira