Innlent

Umræðan um Landspítalann galin

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/pjetur/gva
„Umræðan um þetta er alveg galin. Þetta er flókið kerfi og það hentar stundum pólitískt að gera sér mat úr einhverju sem kannski er ekki fullur skilningur á,“ segir Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra í Bítinu í morgun.

Landspítalinn kemur að öllum líkindum til með að fara umtalsvert fram úr fjárlögum ársins 2014, væntanlega um nokkur hundruð milljónir króna. Því hafa umræður um hugsanlega skerðingu á réttindum sjúklinga og hvort auka eigi fjárveitingar til Sjúkratrygginga verið töluvert í deiglunni síðustu misseri. Guðbjartur Hannesson, fyrrverandi velferðarráðherra, sagði út í hött að auka kostnað sjúklinga á sama tíma og skattar séu lækkaðir í samtali við RÚV í gær. Fráleitt væri að fjölga í þeim hópi.

„Fyrrverandi velferðarráðherra kemur fram í fréttum í gær og talar um það að það megi ekki hækka gjöld á sjúklinga meira. Þetta er þvílíka fjarstæðan. Annað hvort veit maðurinn ekki betur eða er í einhverjum pólitískum leik,“ segir Kristján.

Samningar við sérgreinalækna hafi runnið út árið 2010 og að síðasta ríkisstjórn hafi ekki viljað semja við þá. Kostnaðarhlutdeild sjúklinga hafi vaxið stjórnlaust úr 29 prósentum í 42 prósent, þar til nýr samningur var gerður í desember síðastliðnum. Síðan þá hafi hlutdeild sjúklingsins verið 30 prósent. 

„Það er engin umræða um það að hlutur sjúklinga hafi lækkað. Af hverju ekki? Vegna þess að það hentar ekki. Þó svo við höfum mismunandi sýn pólitískt til lífsins þá þurfa ábyrgir aðilar í þjóðfélagsumræðunni, eins og fyrrverandi ráðherrar og þingmenn, að gera sér grein fyrir því hvað um er að ræða og leggi fram sem hlutlægastar upplýsingar í þessum efnum. Ekki vera að hræra upp í fólki af óþarfa.“  Þá segir Kristján Þór fólk oft detta í niðurrífsgír í umræðunni, sérstaklega þegar rætt er um peninga.

„Höfum það í huga að Landspítalinn er stærsti vinnustaður landsins og veltir rúmlega fjörutíu milljörðum króna. Það ætlar allt af göflunum að ganga þegar útlit er fyrir 1-1,5 prósenta framúrkeyrslu á fjárlögum.“

Kristján segir sveigjanleika í rekstri Landspítalans nauðsynlegan og að hverri krónu sé vel varið. Hann viðurkennir þó, eftir að hafa setið í fjárlaganefnd, að útgjöld hafi oft á tíðum verið vanáætluð.

Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, segir framúrkeyrslu stofnana vonbrigði. Staðan muni þó skýrast betur þegar níu mánaða uppgjör kemur út í september. 


Tengdar fréttir

Framúrkeyrsla stofnana vonbrigði

Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar Alþingis, segir ríkisstjórnina enn stefna að hallalausum fjárlögum fyrir árið.

Enginn afsláttur gefinn á hallalausum fjárlögum

„Það er orðið tímabært að það sé slegið í borðið og þetta munstur verði rofið. Þetta verður ekki liðið lengur því það er erfitt að reka mörg ríki í ríkinu,“ segir Vigdís Hauksdóttir.

Agi og óvinsælar ákvarðanir

Það lofar góðu hversu fast fjárlaganefnd Alþingis virðist ætla að taka á eyðslu ríkisstofnana umfram fjárlög, sem hefur verið í fréttum undanfarna daga.

Ótímabært að útiloka stuðning við Landsspítalann

Ekki er tímabært að útiloka aukinn stuðning við stofnanir eins og Landspítalann sem mun að óbreyttu fara fram úr fjárheimildum um nokkur hundruð milljónir. Þetta segir Oddný G. Harðardóttir sem situr í fjárlaganefnd Alþingis. Guðlaugur Þór Þórðarsson, varaformaður fjárlaganefndar aftók með öllu í gær að því að einhver slaki yrði gagnvart einstökum ríkisstofnunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×