Innlent

Kvika talin streyma inn í eldstöðina af miklu afli

Kristján Már Unnarsson skrifar
Almannavarnir lýstu í kvöld yfir hættustigi norðan Dyngjujökuls og hafa ákveðið að hálendið þar verði rýmt. Mikið magn kviku er talið streyma upp í Bárðarbungueldstöðina og segja vísindamenn atburðinn mjög öflugan.

Click here to see an English version

Vegamálastjóri segir að brýrnar yfir Jökulsá muni ekki þola hamfaraflóð í líkingu við það sem varð á Skeiðarársandi fyrir átján árum. Hræringarnar vekja nú heimsathygli og flugmálayfirvöld eru viðbúin að loka flugleiðum vegna hugsanlegs öskuskýs.

Eldstöðin Bárðarbunga telst nú ógnvaldur og viðbrögð yfirvalda við þeirri ógn eru orðin víðtæk. Norðan Vatnajökuls, þar sem óttast er að flóðbylgja bresti á, er búið að loka hálendisvegum og banna alla umferð, bæði akandi og gangandi. Bárðarbunga er komin í heimsfréttirnar, alþjóðafjölmiðlar rifja upp öngþveitið sem Eyjafjallajökull olli árið 2010.

Á jarðskjálftamælum Veðurstofunnar sjá sérfræðingar að virknin í Vatnajökli er áfram stöðug og mikil. Kristín Vogfjörð, jarðskjálftafræðingur og rannsóknarstjóri Veðurstofunnar, segir að þetta sé mjög öflugur atburður.

„Þannig að þetta heldur bara áfram. Þetta er mjög mikil virkni, þetta er margfalt meira heldur en undanfarin ár."

Kristín Vogfjörð jarðskjálftafræðingur, rannsóknarstjóri Veðurstofu Íslands.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.
Kristín segir mikið magn kviku streyma undir eldstöðinni og til norðausturs í átt til Kverkfjalla. Hún segir kvikuna enn halda sig á fimm til tíu kílómetra dýpi, - og ekki sjáist merki þess að hún sé á leið til yfirborðs. Spurð hvort henni finnist líklegt að gos hefjist á næstu sólarhringum svarar Kristín: 

„Ekkert frekar. Það er ekkert sem bendir til þess að það sé að bresta á. En það hvað þetta er mikil virkni og stór atburður er full ástæða til að vera vel vakandi yfir hlutunum og búa sig undir að það gæti eitthvað gerst." 

Í höfuðstöðvum Vegagerðarinnar eru menn þegar farnir að huga að viðbrögðum, komi til eldsumbrota. Brýrnar þrjár yfir Jökulsá eru við Öxarfjörð, Gímsstaði og Upptyppinga og Hreini Haraldssyni vegamálastjóra líst illa á að fá hlaup í líkingu við það sem varð á Skeiðarársandi.

„Nei, þær myndu ekki þola það, engin þeirra. Þær bara færu strax," svarar vegamálastjóri. Hann segir vísindamenn þó allt eins gera ráð fyrir að hlaup gæti orðið mun minna. Vegagerðin undirbýr því að geta kallað til vinnuvélar með skömmum fyrirvara til að rjúfa vegi við brýrnar til að létta álagi af steyptu mannvirkjunum, ef flóð kæmi sem væri af viðráðanlegri stærð.

Jökulsárbrú á hringveginum við Grímsstaði á Fjöllum.Stöð 2/Sigurjón Ólason.
Missir brúnna þýddi tveggja til þriggja milljarða króna fjárhagstjón, rof hringvegarins og allra vegtenginga milli Norður- og Austurlands. Vegamálastjóri segir að það yrði kannski meira samfélagstjón að missa þessar samgöngur um langan tíma, því langan tíma tæki að endurbyggja brýrnar. 

Um 400 flugvélar fara að jafnaði um íslenska flugstjórnarsvæðið á hverjum degi. Viðvörunarstig gagnvart flugi var sett upp á næstefsta stig í gær en í flugstjórnarmiðstöðinni á Reykjavíkurflugvelli gengur þó allt sinn vanagang og flugumferðin er ekki farin að sneiða framhjá Íslandi, að sögn Friðþórs Eydals, talsmanns Isavia. 

Menn eru reynslunni ríkari, eftir Eyjafjallajökul og Grímsvötn, og margir sem eiga pantað flug óttast eflaust að verða strandaglópar ef gos hefst. Þá yrði gripið til þess að loka þeim svæðum sem teldust hættuleg flugumferð.

Frá Sprengisandsleið við Tómasarhaga í gær. Skammt frá eru gatnamótin inn á Gæsavatnaleið, sem nú hefur verið lýst bannsvæði.Stöð 2/Sveinn Arnarsson.

Tengdar fréttir

700 skjálftar frá miðnætti

Um 700 jarðskjálftar hafa mælst við Bárðarbungu frá því á miðnætti. Jarðeðlisfræðingur segir um sé að ræða stærstu jarðskjálftahrinu við Bárðarbungu í lengri tíma.

Virknin gengur áfram í bylgjum

Skjálftavirkni í kringum Bárðarbungu er enn mikil en þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Næstum 3000 skjálftar á þremur dögum

Skjálftarnir hafa færst til norðurs og austurs að undanförnu. Flestir skjálftarnir hafa til þessa átt upptök sín á um 5 til 10 kílómetra dýpi og engar vísbendingar eru um að þeir séu að færast ofar.

Líkist æ meir kvikuinnskoti sem ekki nái til yfirborðs

Atburðarásin í Bárðarbungu minnir mjög á Kröfluelda, segir Páll Einarsson prófessor, og telur þetta geta verið upphafið að margra ára ferli, en segir þó minnkandi líkur á að eldgos sé yfirvofandi.

Bárðarbunga gæti valdið hamförum við Dettifoss

Almannavarnir lýstu í dag yfir óvissustigi vegna jarðskjálftahrinu sem staðið hefur yfir í Bárðarbungu frá því í nótt. Kvika er talin vera á hreyfingu í eldstöðinni.

Enn mikil skjálftavirkni undir Bárðarbungu

Heldur dró úr skjálftavirkni undir Bárðarbungu upp úr miðnætti en svo jókst hún aftur um fjögur leytið í nótt og varð brátt álíka og í fyrrinótt, þegar vel á þriðja hundrað skjálftar mældust frá miðnætti til klukkan sex í gærmorgun.

Vefmyndavél komið fyrir við Bárðarbungu

Áhugasamir netverjar geta nú fylgst með öllum helstu hreyfingum Bárðarbungu í beinni á netinu en vefmyndavél var komið upp á Grímsfjalli í Vatnajökli í gær




Fleiri fréttir

Sjá meira


×