Elstur til að þreyta Viðeyjarsundið Stefán Ó. Jónsson skrifar 2. ágúst 2014 10:53 „
Það hefur nú margur gert þetta áður þannig að þetta er ekkert sérstakt í sjálfu sér,“ segir Jón Sigurðarson sundkappi sem gerðist svo frægur í gær að verða elstur manna til að þreyta Viðeyjarsundið, en Jón er á 63 aldursári. Jón lagði af stað úr eyjunni um klukkan hálf tvö og velktist hann um í 11 gráðu heitum sjónum í rúma tvo klukkutíma áður en hann kom að landi. „Á korti er leiðin um 4,5 kílómetrar að lengd en maður syndir alltaf eitthvað lengra því að sterkir straumar taka mann og flytja mann af leið. Ég veit ekki nákvæmlega hvað ég synti langa leið því ég var ekki með GPS-tæki – þeir eru með svoleiðis, ungu mennirnir,“ segir Jón. Jón segist hafa byrjað að stunda sjósund af kappi árið 2008 og fór sitt fyrsta sund í köldum marsmánuði þess árs. Hann hafi áður haft hugann við löng sund í sundlaugum borgarinnar en forvitnin hafi að lokum leitt hann í átt að sjósundinu. Jón segir að félagsskapurinn skipti miklu máli í sjósundinu og að félagarnir sem hann eignaðist í tengslum við íþróttina hafi teymt hann áfram og aukið áhuga hans. Hann hafi einnig verið með þjálfara sem hafi náð miklu úr honum en Jón segir að galdurinn við sjósundið liggi í því að þekkja sjálfan sig. „Þetta er líka alveg einstök náttúruskoðun. Maður syndir innan um strandsíli og makríl og er í ótrúlegri nánd við sjófuglana sem á vegi manns verða - maður kemst nánast alveg upp að þeim. Svo hefur selurinn oft brugðið á leik við hliðina á manni,“ segir Jón. Jón segist ekki hættur sundinu og að margt sé á dagskránni í þeim efnum. Þeir félagarnir ætli til að mynda að synda í Mývatni í sumar um þriggja kílómetra leið. Hann biður alla þá sem hafa áhuga á sjósundinu að setja sig í samband við sjósundmennina í Nauthólsvík. „En alls ekki vera að fikta við þetta einir án aðstoðar. Það getur endað illa,“ segir Jón Sigurðsson sundkappi. Hér að ofan má sjá nokkrar myndir sem Daníel ljósmyndari náði af þrekrauninni.Jón Sigurðsson kemur að landi.
Mest lesið Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Innlent Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Innlent Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Innlent Fundar með lækni frá Úkraínu sem þjónar til borðs á Íslandi Innlent Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Innlent „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Innlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Erlent Einn á sjúkrahús eftir árekstur á Hringbraut Innlent Fleiri fréttir Óttast ekki að þjóðaratkvæðagreiðslunni verði seinkað Vísbendingar um að Kristrún vísar þögn um ESB-málið á bug Sjúklingar enn á göngum bráðamóttökunnar Frekari ESB-umræður í þinginu Lögregla varar enn á ný við vasaþjófum Fundar með lækni frá Úkraínu sem þjónar til borðs á Íslandi Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Einn á sjúkrahús eftir árekstur á Hringbraut Hafa dregið rafbyssurnar fram hundrað sinnum Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Ræddu þjóðaratkvæði fram á kvöld og halda áfram í dag Áfram skúrir í dag Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Oddvitinn lætur gott heita í Mosfellsbæ Evrópuhiti, Bjarni Ben og bílastæði Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Þau verða í efstu tíu sætunum á lista Pírata Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Hefur setið tvo af þremur borgarstjórnarfundum frá því að hann skipti um lið Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Bein útsending: ESB-ballið byrjar á Alþingi Sjá meira