Innlent

Elstur til að þreyta Viðeyjarsundið

Stefán Ó. Jónsson skrifar
„Það hefur nú margur gert þetta áður þannig að þetta er ekkert sérstakt í sjálfu sér,“ segir Jón Sigurðarson sundkappi sem gerðist svo frægur í gær að verða elstur manna til að þreyta Viðeyjarsundið, en Jón er á 63 aldursári.

Jón lagði af stað úr eyjunni um klukkan hálf tvö og velktist hann um í 11 gráðu heitum sjónum í rúma tvo klukkutíma áður en hann kom að landi.

„Á korti er leiðin um 4,5 kílómetrar að lengd en maður syndir alltaf eitthvað lengra því að sterkir straumar taka mann og flytja mann af leið. Ég veit ekki nákvæmlega hvað ég synti langa leið því ég var ekki með GPS-tæki – þeir eru með svoleiðis, ungu mennirnir,“ segir Jón.

Jón segist hafa byrjað að stunda sjósund af kappi árið 2008 og fór sitt fyrsta sund í köldum marsmánuði þess árs. Hann hafi áður haft hugann við löng sund í sundlaugum borgarinnar en forvitnin hafi að lokum leitt hann í átt að sjósundinu.

Jón segir að félagsskapurinn skipti miklu máli í sjósundinu og að félagarnir sem hann eignaðist í tengslum við íþróttina hafi teymt hann áfram og aukið áhuga hans. Hann hafi einnig verið með þjálfara sem hafi náð miklu úr honum en Jón segir að galdurinn við sjósundið liggi í því að þekkja sjálfan sig.

„Þetta er líka alveg einstök náttúruskoðun. Maður syndir innan um strandsíli og makríl og er í ótrúlegri nánd við sjófuglana sem á vegi manns verða - maður kemst nánast alveg upp að þeim. Svo hefur selurinn oft brugðið á leik við hliðina á manni,“ segir Jón.

Jón segist ekki hættur sundinu og að margt sé á dagskránni í þeim efnum. Þeir félagarnir ætli til að mynda að synda í Mývatni í sumar um þriggja kílómetra leið.

Hann biður alla þá sem hafa áhuga á sjósundinu að setja sig í samband við sjósundmennina í Nauthólsvík. „En alls ekki vera að fikta við þetta einir án aðstoðar. Það getur endað illa,“  segir Jón Sigurðsson sundkappi.

Hér að ofan má sjá nokkrar myndir sem Daníel ljósmyndari náði af þrekrauninni.

Jón Sigurðsson kemur að landi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×