Holunum fækkar á Vestfjarðavegi Kristján Már Unnarsson skrifar 3. ágúst 2014 14:15 Gísli Eysteinsson, verkstjóri hjá Suðurverki. Nýja brúin yfir Kjálkafjörð í baksýn. Stöð 2/Baldur Hrafnkell Jónsson.
Nýr fjögurra kílómetra vegarkafli á sunnanverðum Vestfjörðum með bundnu slitlagi var opnaður umferð í fyrsta sinn fyrir verslunarmannahelgi. Kaflinn er við vestanverðan Kerlingarfjörð í Austur-Barðastrandarsýslu, undir Litlanesfjalli, þar sem vinnubúðir verktakans, Suðurverks, eru staðsettar. Undirverktaki, Borgarverk, lauk á fimmtudag við að leggja fyrri umferð bundins slitlags á kaflann. Þetta er fyrsti áfanginn sem tekinn er í notkun í umfangsmiklum endurbótum á 24 kílómetra kafla Vestfjarðavegar um Kjálkafjörð, Kerlingarfjörð og Mjóafjörð. Tveir fjarðanna verða þveraðir, sem þýðir átta kílómetra styttingu þjóðvegarins, þannig að í stað 24 kílómetra holótts malarvegar kemur 16 kílómetra malbiksvegur. Stefnt hafði verið að því að opna brúna yfir Kjálkafjörð fyrir verslunarmannahelgi. Það markmið náðist ekki og vonast Gísli Eysteinsson, verkstjóri Suðurverks, nú til þess að hægt verði að opna Kjálkafjarðarbrúna í byrjun september. Lokaáfanginn, brúin yfir Mjóafjörð, verði svo opnaður í kringum mánaðamótin október-nóvember. Að undanskildum jarðgöngum er þetta langstærsta verkefni í vegagerð hérlendis eftir hrun.
Tengdar fréttir Útlendingar aldrei séð aðra eins vegi Vondir vegir koma í veg fyrir að unnt sé að byggja upp heilsársferðaþjónustu á Vestfjörðum, segja eigendur Hótels Flókalundar, sem aðeins hafa opið yfir sumartímann. 28. júní 2014 19:45 Fækka malarköflunum til Patreksfjarðar um helming Stærsta verk sem Vegagerðin hefur ráðist í eftir hrun, þverun tveggja fjarða á Vestfjörðum, er komið í fullan gang. Þegar verkinu lýkur fækkar síðustu malarköflunum milli Patreksfjarðar og Reykjavíkur um helming. 9. júní 2013 19:21 Brú yfir Kjálkafjörð opnuð fyrir verslunarmannahelgi Einn vestfirsku fjarðanna, Kjálkafjörður, er að lokast þessa dagana með vegfyllingu, og það var rétt eins og opnað væri fyrir flóðgátt þegar sjónum var í fyrsta sinn hleypt undir nýju brúna yfir fjörðinn. 12. júní 2014 20:15 Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira
Útlendingar aldrei séð aðra eins vegi Vondir vegir koma í veg fyrir að unnt sé að byggja upp heilsársferðaþjónustu á Vestfjörðum, segja eigendur Hótels Flókalundar, sem aðeins hafa opið yfir sumartímann. 28. júní 2014 19:45
Fækka malarköflunum til Patreksfjarðar um helming Stærsta verk sem Vegagerðin hefur ráðist í eftir hrun, þverun tveggja fjarða á Vestfjörðum, er komið í fullan gang. Þegar verkinu lýkur fækkar síðustu malarköflunum milli Patreksfjarðar og Reykjavíkur um helming. 9. júní 2013 19:21
Brú yfir Kjálkafjörð opnuð fyrir verslunarmannahelgi Einn vestfirsku fjarðanna, Kjálkafjörður, er að lokast þessa dagana með vegfyllingu, og það var rétt eins og opnað væri fyrir flóðgátt þegar sjónum var í fyrsta sinn hleypt undir nýju brúna yfir fjörðinn. 12. júní 2014 20:15