Innanríkisráðherra hótað lífláti Hjörtur Hjartarson skrifar 6. ágúst 2014 19:15
Innanríkisráðherra hafa borist fjölmargar líflátshótanir og hótanir um líkamsmeiðingar á undanförnum vikum og mánuðum. Hótanirnar sem allar hafa komið í kjölfar lekamálsins svokallaða, hafa ekki verið kærðar til lögreglu sem hefur þó aukið eftirlit með heimili hennar. Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra greindi frá því á Sprengisandi á Bylgjunni að henni hefðu borist hótanir án þess þó að greina frá því í smáatriðum. „Ég hef fengið ítrekaðar hótanir. Ég hef fengið morðhótanir út af þessu. Þetta er öryggismál og ég hef ekkert verið að hvetja alla til að vinda sér inn í þann hring. Mér finnst alveg nóg að ég standi í því,“ sagði Hanna Birna á Sprengisandi. Hanna Birna vildi ekki tjá sig frekar um málið þegar eftir því var leitast í dag en samkvæmt heimildum fréttastofu hafa hótanirnar borist henni í gegnum tölvupóst og Facebook. Hótanir um líkamsmeiðingar, myndrænar lýsingar á þeim slæmu hlutum sem muni komi fyrir hana og hennar fjölskyldu og hreinar og klárar líflátshótanir eru á meðal þess sem hún hefur fengið sent. Lögreglunni hefur verið gert viðvart um hótanirnar en þær ekki kærðar. Lögreglan ákvað í kjölfarið að auka eftirlit með heimili Hönnu Birnu sem felur í sér að lögreglubíl er reglulega ekið þar um. Ekki hefur verið gripið til þessa ráðs að veita Hönnu frekari vernd. Þó er unnið eftir ákveðnum starfsreglum sem tryggja eiga öryggi Hönnu Birnu og fjölskyldu hennar ætli sér einhver að gera alvöru úr hótunum sínum. Algengt er að ráðherrar í löndunum í kringum okkur séu með lífverði og þá sérstaklega ráðherrar dómsmála. Ekki hefur verið talin þörf á að veita ráðherrum á Íslandi sömu vernd þó dæmi séu um að svo hafi verið gert. Nærtækast er að horfa aftur til 2008 en í kjölfar hrunsins þótti ráðlegt að veita ákveðnum stjórnmálamönnum vernd eftir að þeim hafði verið hótað og að þeim veist. Erfitt að spá fyrir um hvort þetta sé það sem koma skal, það er að stjórnmálamenn á Íslandi þurfi að búa við reglulegar líflátshótanir og ekki síður hvaða áhrif það kemur til með að hafa á störf þeirra.
Tengdar fréttir Óviðunandi ógn við ráðherra Lögreglumenn á vettvangi tóku ekki eftir því þegar mótmælandi við Alþingishúsið veittist að forsætisráðherra eftir að hafa stjakað við lögreglumanni. Forseti Alþingis segir tilburðina vera algerlega óviðunandi. 14. janúar 2009 06:45 Hanna Birna segist hafa rætt rannsókn lekamáls við Stefán Innanríkisráðherra hefur svarað bréfi umboðsmanns. Segist ráðherrann hafa átt fjóra "almenna" fundi með lögreglustjóranum um rannsókn lekamálsins svokallaða. 1. ágúst 2014 15:54 Aðsúgur gerður að Geir Haarde - eggjum rigndi yfir ráðherrabílinn Gerður var aðsúgur að Geir Haarde forsætisráðherra rétt í þessu við Stjórnarráðið þegar Geir var á leið út úr húsinu. Að sögn sjónarvotta voru mikil læti fyrir framan húsið og rigndi snjóboltum meðal annars yfir ráðherrann. Geir komst við illan leik inn í ráðherrabifreið sína sem var umkringd fólki. 21. janúar 2009 14:26 Hanna Birna í Sprengisandi: Hvaða hag ætti ég að hafa af þessu máli? Innanríkisráðherra segist ekki hafa nokkura hugmynd um hver lak skjali úr ráðuneytinu. Það sé ekki óeðlilegt að aðstoðarmaður hennar hafi verið í samskiptum við fjölmiðla áður en fréttir birtust um Tony Omos. 3. ágúst 2014 11:48 „Ég hef aldrei íhugað að segja af mér“ Hanna Birna Kristjánsdóttir í ítalegu viðtali við kvöldfréttir Stöðvar 2. 2. ágúst 2014 16:15 Tvísýn staða Hönnu Birnu Skiptar skoðanir eru um stöðu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Þingmaður flokksins segir að staða Hönnu Birnu sé mjög veik. 4. ágúst 2014 20:00 Hefur íhugað að hætta í stjórnmálum vegna lekamálsins Lekamálið er ljótur pólitískur leikur að mati Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra. 2. ágúst 2014 19:00 Ráðherra sem hefur glatað trausti tekur pokann sinn Bjarni Benediktsson segir fráleitt að hann þurfi að gefa út traustsyfirlýsingu á Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra í hverju skrefi lekamálsins. 5. ágúst 2014 13:48 Segir lögregluna fara offari í rannsókn á lekamálinu Brynjar Níelsson furðar sig á því að fyrirskipuð hafi verið lögreglurannsókn í málinu og segir að gengið hafi verið á friðhelgi innanríkisráðherra við rannsóknina. 5. ágúst 2014 14:39 Mest lesið Bein útsending frá Sundahöfn: Yfirstandandi aðgerðir um borð í Bandero Innlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Erlent Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið „Þá bara krassa lungun“ Innlent Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Innlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Fleiri fréttir Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending frá Sundahöfn: Yfirstandandi aðgerðir um borð í Bandero Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Sjá meira
Óviðunandi ógn við ráðherra Lögreglumenn á vettvangi tóku ekki eftir því þegar mótmælandi við Alþingishúsið veittist að forsætisráðherra eftir að hafa stjakað við lögreglumanni. Forseti Alþingis segir tilburðina vera algerlega óviðunandi. 14. janúar 2009 06:45
Hanna Birna segist hafa rætt rannsókn lekamáls við Stefán Innanríkisráðherra hefur svarað bréfi umboðsmanns. Segist ráðherrann hafa átt fjóra "almenna" fundi með lögreglustjóranum um rannsókn lekamálsins svokallaða. 1. ágúst 2014 15:54
Aðsúgur gerður að Geir Haarde - eggjum rigndi yfir ráðherrabílinn Gerður var aðsúgur að Geir Haarde forsætisráðherra rétt í þessu við Stjórnarráðið þegar Geir var á leið út úr húsinu. Að sögn sjónarvotta voru mikil læti fyrir framan húsið og rigndi snjóboltum meðal annars yfir ráðherrann. Geir komst við illan leik inn í ráðherrabifreið sína sem var umkringd fólki. 21. janúar 2009 14:26
Hanna Birna í Sprengisandi: Hvaða hag ætti ég að hafa af þessu máli? Innanríkisráðherra segist ekki hafa nokkura hugmynd um hver lak skjali úr ráðuneytinu. Það sé ekki óeðlilegt að aðstoðarmaður hennar hafi verið í samskiptum við fjölmiðla áður en fréttir birtust um Tony Omos. 3. ágúst 2014 11:48
„Ég hef aldrei íhugað að segja af mér“ Hanna Birna Kristjánsdóttir í ítalegu viðtali við kvöldfréttir Stöðvar 2. 2. ágúst 2014 16:15
Tvísýn staða Hönnu Birnu Skiptar skoðanir eru um stöðu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Þingmaður flokksins segir að staða Hönnu Birnu sé mjög veik. 4. ágúst 2014 20:00
Hefur íhugað að hætta í stjórnmálum vegna lekamálsins Lekamálið er ljótur pólitískur leikur að mati Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra. 2. ágúst 2014 19:00
Ráðherra sem hefur glatað trausti tekur pokann sinn Bjarni Benediktsson segir fráleitt að hann þurfi að gefa út traustsyfirlýsingu á Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra í hverju skrefi lekamálsins. 5. ágúst 2014 13:48
Segir lögregluna fara offari í rannsókn á lekamálinu Brynjar Níelsson furðar sig á því að fyrirskipuð hafi verið lögreglurannsókn í málinu og segir að gengið hafi verið á friðhelgi innanríkisráðherra við rannsóknina. 5. ágúst 2014 14:39