Fótbolti

Flensa herjar á þýska landsliðið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Joachim Löw, þjálfari þýska landsliðsins, segir að sjö leikmenn liðsins hafi kvartað undan flensueinkennum.

Þetta eru slæmar fréttir fyrir Þjóðverja sem mæta Frökkum í fyrsta leik fjórðungsúrslitanna á HM í Brasilíu klukkan 16.00 á morgun.

Mats Hummels missti af leik Þýskalands gegn Alsír í 16-liða úrslitunum vegna veikinda og nú virðist sem svo að aðrir hafi smitast.

„Sjö leikmenn eru með smávægileg flensueinkenni. Ástandið er ekki svo slæmt í augnablikinu,“ sagði Löw. „Þetta gæti verið út af loftræstingunni, tíðum ferðalögum og hitabreytingum. Ég vil þó ekki gera stórmál úr þessu.“

Hummels sagði á Twitter-síðu sinni að hann væri allur að koma til og þá er Lukas Podolski að jafna sig eftir smávægilega tognun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×