Fótbolti

Kynlífssveltu leikmennirnir fyrstir heim

Vísir/Getty
Fyrir stórmót í íþróttum vekja agareglur liða oft athygli en mismunandi er milli liða hversu strangar reglur eru. Það sem vekur yfirleitt mesta athygli eru tilskipanir þjálfara til leikmanna um kynlíf á meðan móti stendur.

Er mismunandi háttlag á hvernig þjálfarar taka á þessu enda hafa menn mismunandi skoðanir á því hvort þetta hafi áhrif á leikmennina. Fabio Capello, þjálfari Rússlands og fyrrum þjálfari enska liðsins, bannaði leikmönnum að hitta eiginkonur sínar á meðan mótinu stæði en aðrir þjálfarar leyfðu leikmönnum að hitta eiginkonur en að vera ekki að ofreyna sig.

Spánn, Rússland, Bosnía-Herzegovína, Síle og Mexíkó bönnuðu öll opinberlega leikmönnum sínum að stunda kynlíf á meðan mótinu stæði en ekkert þessara liða verður með í 8-liða úrslitunum sem hefjast í dag. Það verður hinsvegar að fylgja sögunni að fjöldi liða sem leyfði kynlíf á mótinu hafa einnig lokið keppni.


Tengdar fréttir

Engar fimleikaæfingar í bólinu hjá Brössum á HM

Luis Felipe Scolari, þjálfari brasilíska landsliðsins í fótbolta, ætlar að leyfa sínum mönnum að stunda kynlíf á meðan heimsmeistaramótinu stendur þar í landi en það má ekki vera nein meiriháttar bólfimi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×