Higuain skaut Argentínu í undanúrslit Anton Ingi Leifsson skrifar 5. júlí 2014 18:00 Argentínumenn fagna marki Higuain. Vísir/Getty
Argentína er komið í undanúrslit eftir að liðið lagði Belgíu að velli í dag, 1-0. Gonzalo Higuain skoraði eina mark leiksins eftir átta mínútur. Það voru ekki liðnar nema átta mínútur þegar fyrsta markið leit dagsins ljós. Boltinn hrökk til Gonzalo Higuaín á vítateigslínunni og þrumaði boltanum í fjærhornið. Frábærlega klárað og hann valdi sér aldeilis leikinn til að skora sitt fyrsta mark á mótinu. Ekki var mikið fjör eftir þetta og fyrri hálfleikurinn var afspyrnu leiðinlegur. Kevin Mirallas, vængmaður Belgíu, fékk ágætis færi en skallaði boltann framhjá. Angel Di Maria fór af velli eftir rúman hálftíma, en ekki er vitað hversu lengi hann verður frá. Reiðarslag fyrir Argentínumenn. Staðan var 1-0 í hálfleik og Argentínu menn voru með töggl og haldir á leiknum. Markaskorarinn fékk dauðafæri svo eftir tíu mínútur í síðari hálfleik, en hann þrumaði boltanum í slánna eftir frábæran sprett. Eftir klukkutímaleik gerðu Belgarnir tvöfalda breytingu. Kevin Mirallas og Divock Origi fóru af velli og þeir Romelu Lukaku og Dries Mertens komu inná. Með þessari skiptingu kom smá kraftur í leik Belgana og Fellaini fékk ágætis skallafæri stuttu síðar. Eden Hazard var hvergi sjáanlegur, en ætluðu Belgar sér í undanúrslitin þurftu þeir að fá meira framlag frá honum. Honum var síðan skipt af velli þegar stundarfjórðungur var til leiksloka og Nacer Chadli var sendur á vettvang í hans stað. Argentínumenn reyndu allt sem þeir gátu til að drepa leikinn og byrjuðu að tefja sem fór í taugarnar á Belgunum. Lionel Messi fékk svo dauðafæri til að gera út um leikinn í uppbótartíma, en Curtois varði. Belgarnir brunuðu í sókn og þar fékk Lukaku ágætis færi, en náði ekki að koma boltanum á markið né koma boltanum almennilega fyrir markið. Lokatölur urðu svo 1-0 og Argentínumenn gátu fagnað í leikslok, enda komnir í undanúrslitin. Enn og aftur vinnur Suður-Ameríku þjóðin með minnsta mun, en allir sigurleikir Argentínu á mótinu hafa endað með minnsta mun. Argentína gerði það sem þurfti í þessum leik. Lykilmenn Belga náðu sér ekki á strik og náðu Belgarnir ekki að skapa sér nein opin marktækifæri fyrir utan skallana hjá Mirallas og Fellaini. Það ræðst síðar í kvöld hverjum Argentína mætir í undanúrslitunum, en það er annað hvort Holland eða Kosta Ríka.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið KR-ingar bikarmeistarar eftir stjörnuhrap í Smáranum Körfubolti United fagnaði fjórða sigrinum í röð Enski boltinn Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Enski boltinn „Vona að við getum haldið Ólympíuleika sem snúast ekki um typpi“ Sport Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Íslenski boltinn Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Enski boltinn Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum Enski boltinn Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Biður Liverpool að slaka á reglunum Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Fleiri fréttir Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Börsungar gefa ekkert eftir á toppnum Hamrarnir sóttu sigur, Everton sneri leiknum en Villa missti niður forystu Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum United fagnaði fjórða sigrinum í röð Sjáðu mörkin sem Sean Dyche fannst alveg skelfileg Biður Liverpool að slaka á reglunum Fara fögrum orðum um Íslendinginn unga Stóð með sjálfri sér: „Fann að ég myndi ekki ná að blómstra í þessu umhverfi“ Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Risa sigur fyrir Leeds United Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö Hjörtun í vörn Íslands mættust ekki í kvöld Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Þvertaka fyrir að þjálfarinn stökkvi frá borði rétt fyrir HM Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Segir fótboltasérfræðinga bera ábyrgð FH sækir sænskan miðvörð Úlfar í sauðagæru? „Myndi segja að þetta sé framsækin nálgun“ Sakar Arsenal um virðingarleysi „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Leicester missir sex stig og er í mikilli hættu á að falla annað árið í röð Arne Slot: Jérémy Jacquet er gríðarlegt efni Fyrrum leikmaður Aftureldingar og Fram á forsíðu fræga sundfatablaðsins Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Juve hent út úr bikarnum í vel heppnaðri hefndartilraun Alfons lá eftir en fékk svo boltann og skoraði Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Sjá meira