Aron og félagar sekúndum frá 16 liða úrslitunum - Portúgal jafnaði í blálokin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. júní 2014 21:30 Vísir/Getty
Aron Jóhannsson fékk ekki að spila þegar félagar hans í bandaríska landsliðinu voru hársbreidd frá því að tryggja sér sæti í sextán liða úrslitum á HM í fótbolta í Brasilíu eftir 2-2 jafntefli við Portúgal í kvöld í hörkuspennandi leik í hitanum í Manaus í útjarði Amazon-frumskógarins. Clint Dempsey hélt að hann hefði skorað sigurmark bandaríska landsliðsins níu mínútum fyrir leikslok en Varela tryggði Portúgal jafntefli á fimmtu mínútu í uppbótartíma með einni af síðustu snertingu leiksins. Bandaríska liðið hefði tryggt sér sæti í sextán liða úrslitunum með sigri og sent um leið Portúgala heim. Þetta var síðasti leikurinn í annarri umferð riðlakeppninnar á HM í fótbolta í Brasilíu en lokaumferðin fer síðan fram í vikunni. Bandaríkjamenn og Þjóðverjar eru með fjögur stig og nægir báðum jafntefli í innbyrðisleik sínum í lokaumferðinni til þess að tryggja sér sæti í sextán liða úrslitunum. Gana og Portúgal hafa eitt stig hvort. Aron Jóhannsson var á varamannabekknum þrátt fyrir að Jozy Altidore væri ekki leikfær en Aron kom inná fyrir hann í fyrsta leiknum. Jürgen Klinsmann, þjálfari bandaríska landsliðsins, setti Graham Zusi inn í liðið fyrir Altidore og Clint Dempsey fór þess í stað upp á topp. Bandaríska liðið fékk draumabyrjun í fyrsta leik en matraðarbyrjun í kvöld þegar Nani kom Portúgal í 1-0 strax á fimmtu mínútu eftir misheppnaða hreinsun frá varnarmanninum Geoff Cameron. Portúgal fékk færi til að bæta við undir lok fyrri hálfleiksins en Tim Howard varði þá frábærlega í markinu, svo sannarlega ein af flottustu markvörslum mótsins. Bandaríkjamaðurinn Fabian Johnson átti einnig gott skot í hálfleiknum sem fór rétt framhjá. Staðan var því enn 1-0 í hálfleik. Michael Bradley fékk algjört dauðafæri á 55. mínútu eftir flottan undirbúning Fabian Johnson en Ricardo Costa bjargaði á magnaðan hátt á marklínunni þegar allt markið blasti við Bradley. Bandaríkjamenn voru hinsvegar ekki hættir og Jermaine Jones jafnaði á 64. mínútu með flottu langskoti eftir að hann fékk alltof mikinn tíma til að athafna sig fyrir framan vítateiginn. Frábært mark. Clint Dempsey kom Bandaríkjamönnum í 2-1 á 81. mínútu eftir sendingu frá Graham Zusi en varnarmenn portúgalska liðsins spiluðu hann réttstæðan og hann ýtti boltanum yfir marklínuna með brjótskassanum. Bandaríska liðið fagnaði markinu með eftirminnilegum hætti og það er augljóslega frábær andi í hópnum. Aron tók þátt í fögnuðinum og var ekkert að svekkja sig yfir því að fá ekki að spila. Portúgalar voru því á leiðinni heim þar til að Varela náði að jafna metin á 95. mínútu með flottum skalla eftir frábæra fyrirgjöf frá Cristiano Ronaldo. Portúgalar eru því enn á lífi þótt að staðan sé ekki góð.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Orri stöðvaður með bikarinn í öryggishliðinu Fótbolti Graði Norðmaðurinn steig fram og leiðrétti þjálfarann Fótbolti Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Enski boltinn Glímir við mikið áfall: „Ennþá smá dauður að innan“ Körfubolti „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Íslenski boltinn Fundu loks arftaka eftir að Arnór samdi við HSÍ Sport Hlauparar hópast í nýja íþróttafélagið Hraða Sport Tilkynna lögreglu um „viðurstyggilegt og afmennskandi“ kynþáttaníð Enski boltinn „Ég er bara í skýjunum með að hafa unnið hann“ Sport Hótelstjórarnir örvænta og lækka verðið á hótelgistingu á HM Fótbolti Fleiri fréttir West Ham felldi Wolves Fiorentina fjarlægist fallsætin Strákarnir hans Sigga Ragga með fjögurra stiga forskot á toppnum Konaté segist vera nálægt því að framlengja við Liverpool Elías með stórleik í sigri í toppslag Rosenior finnur fyrir hundrað prósent stuðningi Marco Rose tekur við Bournemouth eftir tímabilið Spilað inni á Akranesi á miðvikudaginn Goðsögn tekur við og þjálfar son sinn Graði Norðmaðurinn steig fram og leiðrétti þjálfarann Unglingalandsliðsfyrirliði frá Blikum í Val „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Vonsvikinn Raya ræddi við Hjörvar Tilkynna lögreglu um „viðurstyggilegt og afmennskandi“ kynþáttaníð Sjáðu tímamótamark íslenska táningsins eftir „erfiðan“ tíma Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Wiegman kenndi grasinu í Laugardal um Sjáðu mörkin: Haaland setti allt í hnút og hetjudáð Van Dijk Liðsfélagi Glódísar Perlu ráðin í starf hjá karlaliði Bayern Orri stöðvaður með bikarinn í öryggishliðinu Hótelstjórarnir örvænta og lækka verðið á hótelgistingu á HM „Hann var grátandi í hálfleik“ Lyon gerði það sem Liverpool tókst ekki á móti PSG „Góður dagur fyrir rauða hluta Liverpool“ „Góð auglýsing fyrir ensku úrvalsdeildina“ „Við fengum stór færi til að vinna“ Viktor Bjarki skoraði þegar FCK landaði sigri eftir að hann kom inn á Luis Díaz lagði upp tvö þegar Bæjarar tryggðu sér þýska titilinn Haaland hetja City og apríl verður enn verri fyrir Arsenal Viðar með stoðsendingu í stórsigri Sjá meira