Fótbolti

Motta: Hitinn lagði Ítalíu ekki Kostaríka

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Motta að grillast í hitanum
Motta að grillast í hitanum vísir/afp
Ítalski miðjumaðurinn Thiago Motta segir óbærilegan hitann í Recife í Brasilíu vera einu ástæðuna fyrir því að Ítalía tapaði 1-0 fyrir Kostaríka í heimsmeistarakeppninni í fótbolta.

Ítalía lagði England í fyrstu umferð riðlakeppninnar en náði sér aldrei á strik gegn Kostaríka og varð að játa sig sigraða.

Motta sagði fyrir leikinn að leikmenn Kostaríka væru vanari erfiðum aðstæðum og hann segir það hafa komið á daginn.

„Þetta er ekki afsökun, þetta er sannleikurinn,“ sagði Motta við fjölmiðla eftir leikinn í Recife.

„Það var mikill kraftur í þeim bæði með og án bolta. Ég veit ekki hvort Ítalía hefði unnið ef leikurinn hefði verið flautaður á síðar um daginn en hann hefði verið öðruvísi. Ef hitinn hefði verið í lagi fyrir alla eins og þegar Úrúgvæ mætti Englandi í 14 gráðum þá hefðum við séð öðruvísi leik.

„Til dæmis á móti Englandi. Þegar við vorum með boltann gátu þeir ekki pressað okkur hátt eins og þeir eru vanir og þegar þeir voru með boltann gátum við ekki pressað á þá heldur.

„Í dag var þetta allt öðruvísi. Með fullri virðingu fyrir Kostaríka sem lék frábærlega þá spila þeir ekki með neinu af bestu liðum Evrópu, ef við skoðum leikmannahópinn þeirra.

„Við spiluðum klukkan 13:00 í brjáluðum hita. Leyndarmálið var hitinn. Við getum talað um hungur og margt annað en að mínu mati snérist þetta allt um að þeir þekktu aðstæður betur,“ sagði Motta sem vonast til þess að liðið nái að jafna sig fyrir úrslitaleik um sæti í 16 liða úrslitum við Úrúgvæ.

„Við vitum að þetta verður ekki auðvelt gegn Úrúgvæ. Þeir eru með góðan hóp og aftur munum við leika klukkan 13:00. Kannski geta þeir ekki spilað af sama krafti og Kostaríka í hitanum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×