Bandaríkin ætla að stöðva Ronaldo og komast áfram Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 22. júní 2014 19:30 Klinsmann vill komast áfram áður en liðið mætir Þýskalandi vísir/afp
Aron Jóhannsson og félagar í Bandaríska landsliðinu í fótbolta geta tryggt sér sæti í 16 liða úrslitum Heimsmeistarakeppninnar í fótbolta með því að leggja Portúgal að velli í Brasilíu í kvöld. Leikið er í Manaus í kvöld klukkan 22 og verður leikurinn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2. Ekki er ólíklegt að Aron Jóhannsson verði í byrjunarliði Bandaríkjanna en Jürgen Klinsmann þjálfari liðsins leggur allt kapp á að stöðva Cristiano Ronaldo í leiknum. Ronaldo mætti meiddur til Brasilíu og hefur átt í basli með að ná sér heilum. Hann náði sér engan vegin á strik gegn Þýskalandi í fyrstu umferðinni og þarf að láta ljós sitt skína í kvöld gegn Bandaríkjunum ætli Portúgal ekki að falla úr leik eftir aðeins tvo leiki. „Ef þú gleymir þér og einbeitir þér of mikið að Ronaldo þá mun einhver annar sigra okkur,“ varaði markvörðurinn Tim Howard við í samtali við fjölmiðla. „Við þurfum að vera vakandi og passa upp á hættuna, hvaðan sem hún kemur. Við höfum rætt þetta og sett leikinn upp. Nú þurfum við bara að framkvæma okkar leikáætlun. „Hann er aðal maðurinn,“ sagði Howard um Ronaldo. „Hann er líklega aðal leikmaður keppninnar. Við þurfum að vita hvar hann er. Við þurfum að verjast honum saman og hjálpa hverjum öðrum í vörninni en nei, hann er ekki eina hættan í þeirra liði.“ Jürgen Klinsmann hinn þýski þjálfari Bandaríkjanna segir lið sitt tilbúið að halda aftur af Ronaldo og tryggja sér sæti í 16 liða úrslitum á kostnað Portúgals og Gana. „Þetta er augnablikið þegar þú getur sannað þig. Þetta er augnablikið til að stíga fram í sviðsljósið og mæta þessum leikmönnum og sigrast á þeim,“ sagði Klinsmann. „Við viljum sigra Cristiano og lið hans. Við ætlum að mæta til leiks með allan þann kraft sem við búum yfir, með agann og ákveðnina sem býr í liðinu og eigna okkur leikinn.“ Upphitun fyrir leikinn hefst í HM Messunni klukkan 21:10 á Stöð 2 Sport 2 sem sýnir svo leikinn í beinni útsendingu.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Fótbolti Íþróttamanni ársins leið ekki eins og íþróttamanni Sport Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Íslenski boltinn Fimmtán ára með besta hring dagsins á Íslandsmótinu Golf Haaland tilnefndur til tónlistarverðlauna í Noregi Fótbolti Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Enski boltinn Nuddari Maradona grátklökkur í réttarsalnum Fótbolti Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Enski boltinn Rifu sig upp eftir vonbrigðin í gær og unnu Frakka eftir rosa endasprett Handbolti Argentína mun ekki setja pressu á Lionel Messi Fótbolti Fleiri fréttir Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Nuddari Maradona grátklökkur í réttarsalnum Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Argentína mun ekki setja pressu á Lionel Messi Ensk landsliðskona vill sniðganga HM Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Haaland tilnefndur til tónlistarverðlauna í Noregi Afturelding á toppinn eftir stórsigur og tap Fylkis Uppgjörið: Valur-Víkingur 1-0 | Fyrsti sigur Vals síðan 25. maí „Var bara eitthvað með hann ógeðslega lengi og svo bara skoraði ég“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-ÍBV 4-2 | Draumahálfleikur Emmu kláraði ÍBV Uppgjörið: Þór/KA-Fram 2-0 | Ungi miðvörðurinn hetja norðankvenna Víkingar kaupa Hrannar Snæ frá Noregi Gunnar Orri Olsen um frumraun sína með FCK: „Þetta er stórt!“ Coventry keypti leikmann af mótherjum Valsmanna Deilur Spánar og Marokkó setja undirbúning Barcelona úr skorðum Vildi ekki selja fyrirliðann og lofar að styrkja liðið í staðinn Yngsti landsliðsmaður í sögu Argentínu orðinn liðsfélagi Alberts Valur í brekku: „Ýtum öllu sem er í gangi til hliðar“ Kallar eftir afsögn Infantino og skaut á Blatter Lukaku leitar sér að nýju liði Mexíkó og Argentína styðja Infantino Bjarki söðlar um á Ítalíu og syngur lagið hans Orra Gísli Gotti til Þýskalands Agla María skaut Breiðablik í forkeppni Evrópubikarsins Toney ákærður fyrir líkamsárás á skemmtistað Markvörður Breiðabliks spilaði sem útileikmaður Ætlar að vinna ítölsku úrvalsdeildina Hefur 39 sinnum skipt um lið á ferlinum Sjá meira