Fótbolti

Sækjum til sigurs gegn Þýskalandi

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Jurgen Klinsmann í leiknum í gær.
Jurgen Klinsmann í leiknum í gær. Vísir/Getty
Jurgen Klinsmann, þjálfari bandaríska landsliðsins í fótbolta, mun segja lærisveinum sínum að sækja til sigurs gegn Þýskalandi á fimmtudaginn. Jafntefli nægir báðum þjóðum til þess að komast áfram upp úr riðlinum.

Í leiknum mun Klinsmann mæta Þýskalandi í fyrsta sinn sem þjálfari eftir að hafa leikið með og þjálfað liðið. Klinsmann lék alls 108 leiki fyrir þýska og vestur-þýska landsliðið og skoraði í þeim 38 mörk.

Klinsmann telur hinsvegar að bæði lið muni sækja til sigurs þrátt fyrir að jafntefli dugi.

Joachim Löw mun sinna sínu starfi og ég mínu. Ég get ekki látið bakgrunn minn hafa áhrif heldur er eina markmið mitt að koma liðinu í 16-liða úrslitin. Við förum til Recife með það að markmiði að sigra Þýskaland og ég hef trú á að strákunum takist það,“ sagði Klinsmann.


Tengdar fréttir

Klinsmann: Ég get ekki beðið um meira

Jürgen Klinsmann, þjálfari bandaríska landsliðsins, var ánægður með sitt lið eftir 2-2 jafnteflið við Portúgal í kvöld. Bandaríska liðið var aðeins tuttugu sekúndum frá því að vinna leikinn og tryggja sér sæti í sextán liða úrslitum á HM í Brasilíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×