Fótbolti

Sigurmark frá Vertonghen og Belgía með fullt hús

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Jan Vertonghen fagnar sigurmarkinu.
Jan Vertonghen fagnar sigurmarkinu. Vísir/Getty
Belgía vann H-riðilinn á HM í Brasilíu með fullu húsi stiga, en liðið bar sigurorð af Suður-Kóreu, 1-0, í lokaumferðinni í kvöld.

Belgar léku manni færri frá 44. mínútu þegar StevenDefour fékk rautt spjald fyrir grófa tæklingu. Einum manni fleiri tókst Kóreumönnum samt ekki að landa sínum fyrsta sigri á HM að þessu sinni.

Eina mark leiksins skoraði varnarmaðurinn Jan Vertonghen á 77. mínútu en hann fylgdi þá eftir skoti félaga síns sem var varið beint út í teiginn.

Belgía vann alla leikina í riðlinum, en liðið mætir Bandaríkjunum í 16 liða úrslitum. Leikurinn fer fram í Salvador þann 1. júlí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×