Réttarhöldum yfir Morsi frestað vegna þoku Guðsteinn Bjarnason skrifar 8. janúar 2014 10:45 Múhammed Morsí, fyrrverandi forseti Egyptalands. Fréttablaðið/AP
Múhammed Morsi, fyrrverandi forseti Egyptalands, komst ekki til réttarahalda í Kaíró í morgun vegna veðurskilyrða. Að sögn embættismanns, sem AP fréttastofan ræddi við, var ekki hægt að flytja hann til Kaíró með þyrlu frá fangelsi skammt frá Alexandríu vegna þoku þar við strendur Miðjarðarhafsins. Réttarhöldunum hefur því verið frestað til 1. febrúar. Í þessum réttarhöldum sætir Morsi ákærum, ásamt 14 félögum sínum í Bræðralagi múslima, fyrir að hafa hvatt stuðningsmenn sína til ofbeldisverka gagnvart mótmælendum fyrir utan forsetahöllina í Kaíró í desember árið 2012, þegar Morsí hafði verið forseti í hálft ár. Að minnsta kosti tíu manns létu þar lífið og hundruð særðust. Tvö önnur dómsmál hafa verið höfðuð á hendur Morsí, en honum var steypt af stóli í júlí síðastliðnum af her landsins. Bráðabirgðastjórnin, sem tók við völdum, hyggst efna til kosninga á næstu mánuðum, bæði þing- og forsetakosninga auk þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá.
Mest lesið Upptaka náðist af alvarlegu umferðarslysi Innlent Soham-morðinginn látinn Erlent Eldingu laust niður á höfuðborgarsvæðinu Veður „Ég tel þetta ekki vera ákveðna höfnun á Alexöndru“ Innlent Einn drengur í meðferð á nýju meðferðarheimili Innlent Loka veginum til morguns vegna snjóflóðs Innlent „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Erlent Sumarstarfsmaður stal sjö milljónum af Happdrætti Háskóla Íslands Innlent Gríðarlegur verðmunur á þyngdarstjórnunarlyfjum Innlent Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Erlent Fleiri fréttir „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028 Íhugar að reka Noem eftir deilur við þingmenn Reyna að vernda líf áhafnar annars íransks skips Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Sjá meira