Fótbolti

Scholz: Verður stórkostlegt að koma aftur til Íslands

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Scholz og Óli Kalli vinir eftir leik.
Scholz og Óli Kalli vinir eftir leik. vísir/daníel
„Ég naut þess að spila leikinn enda þekkti ég hálft liðið frá tíma mínum í Pepsi-deildinni," segir Daninn Alexander Scholz og brosti dátt þó svo hans lið hafi ekki náð að skora gegn Íslandi í kvöld. Scholz var með betri mönnum vallarins í kvöld.

„Þetta var gaman. Þessir strákar hafa tekið framförum síðan ég spilaði með Stjörnunni og það hef ég líka gert."

Scholz þurfti að mæta Ólafi Karli Finsen og var gaman að fylgjast með Stjörnumönnunum kljást.

„Það var sérstaklega gaman að glíma við hann. Við áttum nokkrar góðar rimmur og Óli er mjög sterkur leikmaður."

Bakvörðurinn er sérstaklega spenntur fyrir því að koma aftur til Íslands og spila þar á ný.

„Ég hefði viljað fara með betri stöðu til Íslands en þetta verður erfitt núna. Fyrir mig persónulega verður samt stórkostlegt að fara aftur til Íslands. Ég fer til Íslands í öllum mínum fríum og nú fæ ég að spila þar aftur. Þetta verður virkilega skemmtilegt."

Scholz segir að danska liðið hafi ekki vanmetið það íslenska.

„Við vorum að reyna að opna þá. Vissulega lögðu þeir rútunni en það virkaði fyrir þá. Þeir þurfa að koma framar í seinni leiknum og þá verður leikurinn áhugaverðari."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×