Veðjað á réttan óvin í Sýrlandi Guðsteinn Bjarnason skrifar 26. ágúst 2014 06:30 Bashar al Assad Sýrlandsforseti virðist ætla að ná sínu fram. Vísir/AP
Walid Múallem, utanríkisráðherra Sýrlands, sagði í gær að sýrlenski herinn væri þess albúinn að vinna með alþjóðlegum hersveitum gegn vígasveitum Íslamska ríkisins, sem náð hafa stórum svæðum á sitt vald bæði í Sýrlandi og nágrannaríkinu Írak. Hann tók hins vegar skýrt fram að Sýrlendingar ætlist til þess að Bandaríkin, sem gert hafa loftárásir á Íslamska ríkið í Írak, fái samþykki hjá Sýrlandsstjórn áður en gerðar yrðu loftárásir á Sýrland. „Brot gegn fullveldi Sýrlands væru árásarhernaður,“ sagði hann á blaðamannafundi sem hann efndi til í Damaskus í gær. Fari svo að Bandaríkin og jafnvel fleiri Vesturlönd taki höndum saman við sýrlenska herinn og ráði jafnvel á endanum niðurlögum Íslamska ríkisins í Sýrlandi, og þá væntanlega í Írak líka væri Bashar al Assad Sýrlandsforseti búinn að tryggja stöðu sína ansi kyrfilega. Margt bendir meira að segja til þess að hann hafi í upphafi veðjað á þessi málalok, og beinlínis leyft vígasveitum Íslamska ríkisins, eins og þær heita nú, að hreiðra um sig að mestu óáreittar í norðausturhluta landsins. Þar með hafi Íslamska ríkið getað einbeitt sér að því að berjast við aðrar og hófsamari uppreisnarsveitir, sem börðust gegn Assad forseta. Vesturlönd höfðu hins vegar veðjað á þessar hófsamari uppreisnarsveitir, en þær öflugustu þeirra nefndu sig Frjálsa sýrlenska herinn, og vonast til þess að þeim tækist á endanum að steypa Assad af stóli. „Þetta er útpælt, að útrýma Frjálsa sýrlenska hernum og þá stæðu eftir tvö andstæð öfl í Sýrlandi, nefnilega Assad og Íslamska ríkið,“ hefur Maria Abi-Habib, blaðamaður á Wall Street Journal, eftir Issat Sjabander, fyrrverandi þingmanni í Írak, en hann er bæði náinn ráðgjafi Núrís al Malíkis, fyrrverandi Íraksforseta, og bandamaður Assads Sýrlandsforseta. „Nú biður stjórn Assads um aðstoð heimsbyggðarinnar, og heimsbyggðin getur ekki neitað,“ segir Sjabander.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Erlent Fleiri fréttir Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Sjá meira