Erlent

Hart deilt um framtíð Skotlands

Atli Ísleifsson skrifar
Kosningar um hvort Skotland skuli lýsa yfir sjálfstæði fara fram þann 18. september næstkomandi.
Kosningar um hvort Skotland skuli lýsa yfir sjálfstæði fara fram þann 18. september næstkomandi. Vísir/AFP
Skoðanakannanir benda til að Alex Salmond, forsætisráðherra skosku heimastjórnarinnar og leiðtoga skoskra sjálfstæðissinna, hafi haft betur gegn Alistair Darling, leiðtoga  sambandssinna, í sjónvarpskappræðum sem fram fóru í gærkvöldi. Kosningar um hvort Skotland skuli lýsa yfir sjálfstæði fara fram þann 18. september næstkomandi.

Salmond og Darling deildu hart um olíu, gjaldeyrismál og framtíð kjarnorku. Salmond sakaði Darling um að standa með Íhaldsmönnum í London og sagði stefnu þeirra leiða til aukinnar fátæktar skoskra barna.

Darling hafnaði ásökunum andstæðings síns og þráspurði Salmond um hver varaáætlun sjálfstæðissinna væri í gjaldeyrismálum. Breska ríkisstjórnin hefur hafnað því að deila breska pundinu formlega með sjálfstæðu Skotlandi. Þrír stærstu flokkarnir í Bretlandi hafa allir hafnað slíku fyrirkomulagi, þó að Salmond segist búast við að afstaða þeirra breytist, kjósi Skotar með sjálfstæði.

Könnun breska blaðsins Guardian, sem gerð var í gærkvöldi, leiddi í ljós að 71 prósent aðspurðra hafi þótt Salmond standa sig betur í kappræðunum. 29 prósent sögðu Darling hafa haft betur.

Skoðanakannanir benda allar til þess að sambandssinnar muni hafa betur í kosningunum, þar sem í kringum 57 prósent styðja áframhaldandi samband við Breta, en um 43 prósent eru fylgjandi sjálfstæði.

Í frétt BBC má sjá myndbönd af helstu hápunktum sjónvarpskappræðnanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×