Örlög Evrópu og alls heimsins eru undir Birta Björnsdóttir skrifar 26. ágúst 2014 20:00
Fundur leiðtoganna fór fram í Minsk í Hvíta-Rússlandi, en þetta var í fyrsta sinn sem þeir hittust augliti til auglitis síðan í byrjun júní. Catherine Ashton, utanríkis- og öryggismálastjóri Evrópusambandsins, var einnig viðstödd fundinn ásamt forsetum Hvíta-Rússlands og Kazakstan. Fyrirfram var ekki talið að fundurin myndi skila miklu, þó vissulega væri hann skref í rétta átt í deilu landanna. Forseti Úkraínu sagði fundinn þó afar mikilvægan. „Í dag verða örlög Evrópu og alls heimsins ráðin hér í Minsk. Slíkir möguleikar felast í fundi okkar. Saman eigum við að finna hina einu réttu lausn sem friður á öllu meginlandinu veltur á. Ekkert minna. Fyrsta skrefið til að stuðla að jafnvægi í Úkraínu er að tryggja skilvirkt eftirlit á landamærum Úkraínu og Rússlands og það er lykilatriði hvað varðar fullveldisrétt og sjálfstæði landsins,“ sagði Poroshenko. Pútín gerði hinsvegar að umtalsefni viðskiptaþvinganir sem Rúsari hafa verið beittir. „Rússland hefur ætíð virt fullveldisákvörðun ríkja, hvernig þau skipa stjórnmálastarfi sínu og stofna efnahagslegar og hernaðarlegar einingar. Við vonum þó að það skaði ekki aðra aðila alþjóðasamfélagsins og það slíkt verði ekki á okkar kostnað,“ sagði Pútín. Grunnt hefur verið á því góða í samskiptum ríkjanna og ásókn Rússa yfir landamærin í Austur-Úkraínu síst verið til að bæta ástandið. Síðast í gær höfðu úkraínskir hermenn hendur í hári tíu rússneskra kollega sína, sem sögðust hafa farið óvart yfir landamærin. Auk þess að funda með helstu deiluaðilanum er Poroshenko einnig að taka til í bakgarðinum hjá sér, en í gær leysti hann upp þjóðþing Úkraínu og boðaði til kosninga í lok október. Hann sagði marga þingmenn vera enn hliðholla Viktori Janúkóvitsj, fyrrverandi forseta landsins, og að þeir styddu aðgerðir vopnaðra uppreisnarmanna í austurhluta landsins.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fleiri fréttir Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Sjá meira