Erlent

Ný ríkisstjórn Frakklands kynnt til sögunnar

Atli Ísleifsson skrifar
Francois Hollande Frakklandsforseti bað Manuel Valls um að mynda nýja ríkisstjórn í gær.
Francois Hollande Frakklandsforseti bað Manuel Valls um að mynda nýja ríkisstjórn í gær. Vísir/AFP
Francois Hollande Frakklandsforseti kynnti nýja ríkisstjórn undir forsæti Manuel Valls til sögunnar nú síðdegis. Ráðherrar fyrri ríkisstjórnar sem hafa mótmælt frekari niðurskuðaraðgerðum hafa verið látnir fara og er ekki að finna í nýrri ríkisstjórn.

Hollande leysti í gær upp ríkisstjórn landsins eftir miklar deilur á þinginu um efnahagsmál. Hollande samþykkti þar með afsögn Manuel Valls forsætisráðherra og sóttist jafnframt eftir því að Valls myndaði nýja ríkisstjórn.

Emmanuel Macron mun taka við embætti ráðherra efnahagsmála, en Arnaud Montebourg, sem áður fór með málaflokkinn fór fyrir gagnrýninni gegn niðurskurðaraðgerðum ásamt menntamálaráðherranum Benoit Hamon og menningarmálaráðherranum Aurelie Filippetti.

Najat Vallaud-Belkacem, fyrrverandi ráðherra kvenréttindamála, tekur við embætti menntamálaráðherra og Fleur Pellerin embætti menningarmálaráðherra.

Laurent Fabius mun áfram gegna embætti utanríkisráðherra, Jean-Yves Le Drian varnarmálaráðherra og Michel Sapin fjármálaráðherra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×