Boateng: HM var martröð frá fyrsta degi til þess síðasta Tómas Þór Þórðarson skrifar 30. júní 2014 11:15 Kevin-Prince Boateng var rekinn heim. vísir/getty
Kevin-Prince Boateng, landsliðsmaður Gana í knattspyrnu, sendir knattspyrnusambandi landsins væna pillu í viðtali við þýska íþróttaablaðið SportBild. Hann segir undirbúning liðsins og veru þess á HM í Brasilíu algjörlega misheppnaða frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Mikið gekk á í herbúðum Gana, sérstaklega undir lok riðlakeppninnar þegar leikmennirnir hótuðu að spila ekki vegna vangoldinna bónusgreiðslna. Flogið var frá Gana til Brasilíu með þrjár milljónir dala sem leikmennirnir skiptu á milli sín. „Ég er svakalega svekktur með þetta allt saman. Þetta var einfaldlega ekki skemmtilegur tími - heldur martröð frá fyrsta degi undirbúnings og allt til enda,“ segir Boateng. „Mér datt ekki í hug að hægt væri að skipuleggja undirbúning fyrir HM og veru á mótinu svona allt. Það var allt slæmt; hótelin og flugin.“ „Flugið okkar frá Miami til Brasilíu tók tólf klukkustundir. Við sátum aftast, alveg troðnir. Okkur verkjaði í fæturnar. Fyrir atvinnumenn er þetta móðgandi. Á sama tíma sat forseti sambandsins á Buisness Class með konuna og börnin sín tvö. Í Brasilíu tókst fólkinu sem bar ábyrgð á ferðatöskunum að týna minni. Ég var ekki með takkaskó í marga daga, ekkert límband, ekkert. Þetta var skelfilegt.“ „Fyrir leikinn á móti Bandaríkjunum sváfum við á sóðalegu hóteli. Það getur ekki verið að FIFA hafi mælt með þessu hóteli. Herbergin voru blaut. Ég þurfti að skipta um hebergi því þetta var eins og í sundlaug. Vatn lak úr loftinu,“ segir Kevin-Prince Boateng. Boateng og Muntari voru reknir heim fyrir lokaleik riðlakeppninnar þar sem Gana tapaði á móti Portúgal og féll úr keppni.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Orri stöðvaður með bikarinn í öryggishliðinu Fótbolti Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Enski boltinn Graði Norðmaðurinn steig fram og leiðrétti þjálfarann Fótbolti Glímir við mikið áfall: „Ennþá smá dauður að innan“ Körfubolti „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Íslenski boltinn Hlauparar hópast í nýja íþróttafélagið Hraða Sport Fundu loks arftaka eftir að Arnór samdi við HSÍ Sport Tilkynna lögreglu um „viðurstyggilegt og afmennskandi“ kynþáttaníð Enski boltinn „Ég er bara í skýjunum með að hafa unnið hann“ Sport Hótelstjórarnir örvænta og lækka verðið á hótelgistingu á HM Fótbolti Fleiri fréttir Marco Rose tekur við Bournemouth eftir tímabilið Spilað inni á Akranesi á miðvikudaginn Goðsögn tekur við og þjálfar son sinn Graði Norðmaðurinn steig fram og leiðrétti þjálfarann Unglingalandsliðsfyrirliði frá Blikum í Val „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Vonsvikinn Raya ræddi við Hjörvar Tilkynna lögreglu um „viðurstyggilegt og afmennskandi“ kynþáttaníð Sjáðu tímamótamark íslenska táningsins eftir „erfiðan“ tíma Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Wiegman kenndi grasinu í Laugardal um Sjáðu mörkin: Haaland setti allt í hnút og hetjudáð Van Dijk Liðsfélagi Glódísar Perlu ráðin í starf hjá karlaliði Bayern Orri stöðvaður með bikarinn í öryggishliðinu Hótelstjórarnir örvænta og lækka verðið á hótelgistingu á HM „Hann var grátandi í hálfleik“ Lyon gerði það sem Liverpool tókst ekki á móti PSG „Góður dagur fyrir rauða hluta Liverpool“ „Góð auglýsing fyrir ensku úrvalsdeildina“ „Við fengum stór færi til að vinna“ Viktor Bjarki skoraði þegar FCK landaði sigri eftir að hann kom inn á Luis Díaz lagði upp tvö þegar Bæjarar tryggðu sér þýska titilinn Haaland hetja City og apríl verður enn verri fyrir Arsenal Viðar með stoðsendingu í stórsigri Gibbs-White með þrennu í mikilvægum sigri Abraham tryggði Aston Villa sigur eftir snilldar viðsnúning hjá Sunderland „Ég er hrikalega stoltur af honum“ Van Dijk tryggði Liverpool sigur í nágrannaslagnum Skoraði fyrsta löglega rangstöðumarkið Sjáðu sigurmark Cunha, Tottenham tapa stigum og hjólhestinn hjá miðverðinum Sjá meira