Liðsmenn IS biðja um aðstoð til að komast heim Atli Ísleifsson skrifar 8. september 2014 10:47 Um 500 breskir ríkisborgarar hafa farið til Sýrlands og Íraks til að berjast í vígasveitum IS. Vísir/AFP
Tugir breskra liðsmanna IS í Sýrlandi hafa beðið um aðstoð til að komast aftur heim til Bretlands. „Við komum ekki hingað til að taka þátt í þessu,“ segir örvæntingarfullur liðsmaður IS í samtali við The Times. Maðurinn, sem segist koma fram fyrir hönd þrjátíu Breta í vígasveitum IS, hafði nýverið samband við ICSR í Lundúnum, stofnun sem rannsakar róttækar hreyfingar og það umhverfi sem þær starfa í. Að sögn mannsins höfðu þeir farið til Sýrlands til þess að berjast gegn Bashar al-Assad Sýrlandsforseta og hersveitum honum hliðhollum, en hafa nú þurft að eiga í átökum við aðra uppreisnarhópa í landinu. Óánægjan hafi því farið stigvaxandi meðal Bretanna. „Við fórum hingað til að berjast gegn stjórninni, ekki til að taka þátt í gengjastríði. Það var ekki ástæða þess að við komum hingað. En ef við yfirgefum landið og förum heim endum við í fangelsi – eða þá verðum við að verða eftir og stríða. Hvaða möguleika höfum við,“ spyr hann The Times. Um 500 breskir ríkisborgarar hafa farið til Sýrlands og Íraks til að berjast í vígasveitum IS, en fjöldi Svía, Norðmanna, Dana auk annarra frá Vesturlöndum hafa einnig gengið til liðs við samtökin.Í frétt norska blaðsins Dagbladet kemur fram að norska utanríkisráðuneytinu hafa einnig borist fyrirspurnir frá norskum liðsmönnum IS sem vilja komast aftur heim til Noregs. Í fréttinni segir að það sé í raun ómögulegt fyrir norsk yfirvöld að aðstoða þá sem hafa gengið til liðs við IS að koma sér út úr Sýrlandi. „Þeir verða að koma sér til Tyrklands fyrst,“ segir Dagbladet.Guardian segir frá því að margir þeirra ungu karlmanna sem taka þá ákvörðun að ferðast frá Vesturlöndum til Sýrlands og ganga til liðs við IS hafa aldrei haldið á vopni þegar þeir koma þangað. Fara þeir í gegnum mánaðar langt námskeið þar sem þeir læra íslamskar kennisetningar, vopnaburð og að taka upp lífsstíl sem flestir þeirra munu nokkurn tímann sleppa frá.
Mest lesið Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Innlent Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Erlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Uppnám í Dettifossmálinu vegna óvænts gagns Innlent Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Erlent Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð Innlent Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Erlent Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Erlent Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Erlent Tafir við gönguljós á Hringbraut ekki vegna bilunar Innlent Fleiri fréttir Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám Sjá meira