Lífið

Hera Björk getur gert enn betur

Aðalframleiðandi keppninnar bað Heru vinsamlegast að vera í rauða kjólnum aftur í keppninni í gær þar sem honum þótti hann svo flottur og hann kom svo vel út á sviðinu.
Aðalframleiðandi keppninnar bað Heru vinsamlegast að vera í rauða kjólnum aftur í keppninni í gær þar sem honum þótti hann svo flottur og hann kom svo vel út á sviðinu. Mynd/valgeir Magnússon
„Mánudagskvöldið gekk mjög vel en ég veit að ég get gert enn þá betur. Ég þarf að taka á nokkrum tæknilegum atriðum, máta mig betur á sviðinu og svo bara keyra þetta í gang,“ segir söngkonan Hera Björg Þórhallsdóttir, sem á mánudaginn var efst í sínum riðli í undanúrslitum Vina del Mar International-söngkeppninnar í Síle. Í kjölfarið komst Ísland á lista yfir umtöluðustu orðin á Twitter í Síle, en það hefur aðeins gerst einu sinni áður, þegar Eyjafjallajökull gaus árið 2010.

Hera steig öðru sinni á svið í keppninni í gærkvöldi, í seinni umferð undanúrslitana. Hún klæddist sama kjól og á mánudaginn, samkvæmt beiðni frá aðalframleiðenda keppninnar. „Hann var rosalega hrifinn af kjólnum og bað mig vinsamlegast um að vera í honum áfram. Við erum svo hlýðin að við brosum bara og gerum eins og okkur er sagt,“ segir Hera og hlær. Kjóllinn þótti koma einstaklega vel út og sjást vel á risastóru sviðinu.

Shakira og Julio Iglesias eru á meðal stórra nafna sem áður hafa tekið þátt í þessari keppni og segir Hera þátttökuna vera mikinn stökkpall fyrir sig. „Þetta er hvorki byrjunarstöð né endastöð, heldur bara skemmtileg stoppistöð. Sigur í keppninni myndi auðvitað þýða sjúklega mikið fyrir mig en hvernig sem fer verður aðalvinnan að fylgja eftir þeirri athygli sem ég er að fá hérna,“ segir hún en um 100 milljónir manna fylgjast með keppninni.

Þegar blaðið fór í prentun lágu úrslit kvöldsins ekki fyrir og því óljóst hvort Hera Björk hafi komist áfram í úrslitin, sem fram fara í kvöld. - trs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.