Hera Björk getur gert enn betur 28. febrúar 2013 16:00 Aðalframleiðandi keppninnar bað Heru vinsamlegast að vera í rauða kjólnum aftur í keppninni í gær þar sem honum þótti hann svo flottur og hann kom svo vel út á sviðinu. Mynd/valgeir Magnússon „
Mánudagskvöldið gekk mjög vel en ég veit að ég get gert enn þá betur. Ég þarf að taka á nokkrum tæknilegum atriðum, máta mig betur á sviðinu og svo bara keyra þetta í gang,“ segir söngkonan Hera Björg Þórhallsdóttir, sem á mánudaginn var efst í sínum riðli í undanúrslitum Vina del Mar International-söngkeppninnar í Síle. Í kjölfarið komst Ísland á lista yfir umtöluðustu orðin á Twitter í Síle, en það hefur aðeins gerst einu sinni áður, þegar Eyjafjallajökull gaus árið 2010. Hera steig öðru sinni á svið í keppninni í gærkvöldi, í seinni umferð undanúrslitana. Hún klæddist sama kjól og á mánudaginn, samkvæmt beiðni frá aðalframleiðenda keppninnar. „Hann var rosalega hrifinn af kjólnum og bað mig vinsamlegast um að vera í honum áfram. Við erum svo hlýðin að við brosum bara og gerum eins og okkur er sagt,“ segir Hera og hlær. Kjóllinn þótti koma einstaklega vel út og sjást vel á risastóru sviðinu. Shakira og Julio Iglesias eru á meðal stórra nafna sem áður hafa tekið þátt í þessari keppni og segir Hera þátttökuna vera mikinn stökkpall fyrir sig. „Þetta er hvorki byrjunarstöð né endastöð, heldur bara skemmtileg stoppistöð. Sigur í keppninni myndi auðvitað þýða sjúklega mikið fyrir mig en hvernig sem fer verður aðalvinnan að fylgja eftir þeirri athygli sem ég er að fá hérna,“ segir hún en um 100 milljónir manna fylgjast með keppninni. Þegar blaðið fór í prentun lágu úrslit kvöldsins ekki fyrir og því óljóst hvort Hera Björk hafi komist áfram í úrslitin, sem fram fara í kvöld. - trs
Mest lesið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Lífið Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir Lífið samstarf Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar Bíó og sjónvarp Halldór Haraldsson er látinn Tónlist Lést af völdum alnæmis Lífið Fleiri fréttir „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Sjá meira