„Ágætt að hið rétta sé komið í ljós“ - lykilvitni dregur framburð til baka Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 3. september 2013 16:06 Sveinn Andri verjandi Annþórs segir að það verði að koma í ljós hvort nýr framburður Bergs Más hafi áhrif á niðurstöðu Hæstaréttar. mynd/365 „
Það verður að koma í ljós hvort að þetta dugi til þess að hnekkja að einhverju leyti dómnum,“ segir Sveinn Andri Sveinsson, verjandi Annþórs Karlssonar. Eins og fram kom í DV í gær hefur Bergur Már Ágústsson eitt af lykilvitnum í máli gegn Annþóri og Berki Birgissyni dregið framburð sinn til baka og segist hafa borið ljúgvitni fyrir dómi. „Það er ágætt að hið rétta sé komið í ljós og þetta er eitt af fjölmörgum atriðum sem kemur til skoðunar við meðferð málsins fyrir Hæstarétti. Þetta styrkir án nokkur vafa málatilbúnað Annþórs og Barkar,“ segir Sveinn Andri. Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness, sem féll 20. desember í fyrra, er byggt á þeim framburði Bergs Más að Annþór hafi í heimildarleysi hleypt sjö mönnum inn í íbúð Bergs Más í Háholti. Þar veittust mennirnir að Bergi og þremur öðrum með því að slá þá ítrekað víðs vegar um líkama og í höfuð með hættulegum vopnum og bareflum, þar á meðal golfkylfum, sleggju, kylfum, handlóðum og tréprikum. Sveinn Andri hitti Berg Má á Litla Hrauni fyrir stuttu þar sem Bergur Már tjáði honum að hann hefði verið undir áhrifum fíkniefna þegar hann gaf skýrslu fyrir héraðsdómi við aðalmeðferð málsins. „Ég sendi því ríkissaksóknara erindi þar sem ég bað um að það yrði tekin ný skýrsla af Bergi Má,“ segir Sveinn Andri. Að sögn Sveins Andra kom fram í skýrslutökunni að Annþór hefði ekki haft sig í frammi að neinu leyti í íbúðinni. Samkvæmt niðurstöðu héraðsdóms sem byggir á fyrri framburði Bergs Más er Annþór sagður vera skipuleggjandi árásarinnar. Annþór og Börkur voru dæmdir ásamt átta öðrum fyrir að líkamsárásir gegn Bergi Má og fleiri mönnum auk annarra brota. Annþór fékk sjö ára fangelsisdóm og Börkur sex ára.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Fleiri fréttir Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir höfðu legið ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Sjá meira