Fótbolti

Sölvi lék allan leikinn

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
MYND/HEIMASÍÐA FC URAL
Sölvi Geir Ottesen lék allan leikinn fyrir Ural sem gerði 1-1 jafntefli Kryliya Sovetov í rússnesku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Ural var 1-0 yfir í hálfleik.

Denis Tumasian kom Ural yfir á 39. mínútu en Alexander Erokhin lét reka sig af leikvelli á 48. mínútu og Ural því manni færri það sem eftir lifði leiks.

Luis Caballero nýtti sér liðsmuninn á 89. mínútu og jafnaði metin eftir mikla pressu gestanna.

Ural er fyrir vikið enn í þriðja neðsta sæti deildarinnar en nú með 12 stig í 17 leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×