Lögmaðurinn ekki ákærður Stígur Helgason skrifar 1. ágúst 2013 07:00 Þjóðverjarnir tveir voru handteknir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í byrjun mars.
Íslenskur héraðsdómslögmaður, sem sætti fyrr á árinu gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hann tengdist innflutningi á tæpum 300 grömmum af kókaíni til landsins, var ekki ákærður í málinu. Í dómi yfir einum smyglaranna segir að margt styðji þann framburð lögmannsins að hann hafi aldrei hitt smyglarann. Dómurinn yfir manninum, hinum þýska Andreas Michael Leyendecker, var kveðinn upp í gær, degi eftir 53 ára afmælisdag hans. Hann hlaut sextán mánaða fangelsisdóm fyrir að standa að innflutningi á kókaíninu, alls 283 grömmum. Annar Þjóðverji, sem flutti efnin til landsins innvortis, hafði áður játað sök og verið dæmdur í tíu mánaða fangelsi. Við komuna til landsins í byrjun mars sagðist Leyendecker ætla að færa fíkniefnin íslenskum lögmanni, Snorra Sturlusyni, sem var í kjölfarið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Snorri neitaði hins vegar sök frá upphafi, sagði þann þýska hafa komist í samband við hann í gegnum skjólstæðing hans sem nú byggi í Suður-Ameríku, og að hann hafi talið að Leyendecker vildi koma hingað til lands til að eiga viðskipti með ávaxtakaffi. Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness segir að framburður Leyendeckers hafi „í öllum atriðum verið með ólíkindum, reikull og misvísandi þannig að erfitt er að henda reiður á hann“ og í ósamræmi við framburð allra annarra. Þá hafi lýsing hans á útliti Snorra verið „í algjörri andstöðu við raunveruleikann“, sem styðji þann framburð Snorra að þeir hafi aldrei hist.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ Innlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira