Geimverurnar umturnuðu lífinu Brjánn Jónasson skrifar 14. október 2013 06:15 Nú 40 árum eftir að hann segist hafa verið brottnumdur af geimverum er Calvin Parker yngri enn sannfærður um að hann og félagi hans hafi hitt gráar geimverur með krabbaklær. Fréttablaðið/AP „
Ég hef varla fengið að eiga mér nokkuð einkalíf,“ segir Calvin Parker yngri um líf sitt eftir að hann og félagi hans sögðu yfirvöldum frá því að þeir hefðu verið brottnumdir af gráum geimverum með krabbaklær. Félagi Parker, Charles Hickson sá aldrei eftir því að hafa sagt yfirvöldum frá því þegar þeir voru brottnumdir af geimverum fyrir 40 árum og sagði söguna öllum sem vildu heyra þar til hann dó fyrir tveimur árum. Parker hélt sig hins vegar að mestu til hlés, en segir atvikið engu að síður hafa sett mark sitt á líf sitt. „Þetta er eitthvað sem ég hefði aldrei óskað þess að gerðist,“ segir Parker. Hann hefur lítið tjáð sig um atvikið, en féllst á að segja fréttastofu AP sögu sína. Atvikið sem þeir félagar sögðu frá er löngu orðið alræmt meðal áhugamanna um fljúgandi furðuhluti og verur frá öðrum hnöttum, og í kjölfar þess að þeir sögðu sögu sína varð sprenging í fjölda fólks sem sagði frá því að það hafi hitt geimverur. Ekkert annað sambærilegt atvik hefur verið rannsakað jafn ítarlega. Parker og Hickson unnu í skipasmíðastöð við bakka Pascagoula-árinnar í Mississippí í Bandaríkjunum. Hann var 18 ára þegar þeir fóru saman niður að ánni til að veiða að kvöldi dags 11. október 1973. Þeir lýstu því fyrir yfirvöldum að þeir hafi séð fljúgandi furðuhlut með blá ljós sem sveif í áttina til þeirra. Hickson, sem var 42 ára, lýsti verunum þannig að þær hafi verið gráar með klær sem minntu á krabba. Hann sagði verurnar hafa gripið um framhandleggi þeirra beggja, og því næst svifið með þá inn í fljúgandi furðuhlutinn. Mennirnir sögðu að geimverurnar hafi rannsakað þá hátt og lágt. Parker segir að hann hafi verið með meðvitund allan tímann, en hafi ekki geta hreyft sig. „Þeir framkvæmdu nákvæma, og þá meina ég virkilega nákvæma, læknisskoðun,“ segir Parker. Eftir það segir hann að geimverurnar hafi skilað þeim niður á árbakkann aftur.Calvin Parker yngri (til hægri) og Charles Hickson sögðu fjölmiðlum sögu sína viku eftir meintan fund með geimverum.Hickson sagðist hafa þurft þrjú staup af sterku áfengi til að róa taugarnar áður en hann treysti sér til að segja lögreglunni sögu sína. Enda töldu lögreglumennirnir líklegast að mennirnir hafi verið drukknir og ímyndað sér atvikið. Parker segir það af og frá. Eftir að hafa yfirheyrt þá í nokkurn tíma skildu lögreglumennirnir þá eftir saman í herbergi, en földu upptökutæki inni hjá þeim í þeirri von að koma upp um lygi. Á upptökunni heyrist hins vegar Hickson segja við Parker: „Ég er dauðhræddur líka. Ég óttast að við eigum ekki eftir að komast yfir þetta á meðan við lifum. Jesús Kristur hafðu miskun.“ Glenn Ryder, fyrrverandi lögreglustjóri, og einn lögreglumannanna sem yfirheyrði tvímenningana sagði ótta þeirra hafa verið ósvikinn. „Ég veit ekki hvað kom fyrir þá. Ég var ekki með þeim. En ég veit að það er ekki hægt að gera sér upp svona ótta.“ Margir hafa reynt að benda á ósamræmi í sögum mannanna, og ekki er víst að margir trúi því að þeir hafi verið brottnumdir af gráum geimverum með krabbaklær. En nú 40 árum eftir þetta afdrifaríka kvöld er Parker jafn sannfærður um að það sé sannleikurin og hann var þetta októberkvöld 1973.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Fleiri fréttir Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Sjá meira