Kolbeinn: Vonandi mæta Íslendingar úr nágrenninu Kolbeinn Tumi Daðason í Ósló skrifar 14. október 2013 10:02 „
Mér líst frábærlega á leikinn. Ég er spenntur eins og held ég allir aðrir. Vonandi komumst við vel frá verkefninu sem bíður á morgun.“ Þau voru fyrstu orð Kolbeins Sigþórssonar, framherja íslenska liðsins, við blaðamann í morgun. Hann var hinn hressasti, einbeittur og telur sjálfstraustið í liðinu mjög mikið um þessar mundir. „Vonandi fáum við þann stuðning sem við höfum verið að bíða eftir. Fólk er að mæta sem er ánægjulegt. Vonandi koma fleiri úr nágrenninu,“ sagði markaskorarinn. „Leikmenn eru meðvitaðir um hvað þetta er mikilvægur leikur. Við megum ekki fara fram úr sjálfum okkur. Þetta verður ekki auðvelt. Það hefur ekki gerst oft að við höfum unnið hér. Ef við eigum góðan leik á morgun eigum við að vinna Norðmennina.“ Kolbeinn segir leikmenn reyna að halda ró sinni en auk þess séu landsliðsþjálfararnir duglegir að minna þá á að halda einbeitingu. „Þeir Heimir minna okkur vel á að vera á jörðinni, halda ró okkar og pæla ekki of mikið í hvað sé framundan eftir leikina. Við einbeitum okkur að þessum leik sem er mikilvægast,“ segir Kolbeinn. Kolbeinn hefur skorað tólf mörk í átján landsleikjum sem er ótrúleg tölfræði og raunar einstök hjá framherja í fótboltanum í dag. Hann hefur skorað í fjórum landsleikjum í röð en hefur hann á tilfinningunni að hann muni skora á morgun? „Sú tilfinning kemur kannski meira á leikdegi. Þegar vel gengur og þú ert að skora þá hefurðu góða tilfinningu. Ef hún er til staðar geturðu verið bjartsýnn fyrir leikinn.“
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Enski boltinn Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Goðsögn fallin frá Enski boltinn Jókerinn með tölvuleikjatölfræði á jóladag Körfubolti Fleiri fréttir Óvissa í Indlandi lætur City selja Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Sjá meira